Stjórnendur bjartsýnir á horfur íslensks hagkerfis Stefán Árni Pálsson skrifar 24. nóvember 2014 14:06 Frá fundi Samtaka atvinnulífsins 2011. vísir/VILHELM
Tæplega 75 prósent íslenskra stjórnenda telja að íslenska hagkerfið muni vaxa á næstu tólf mánuðum. Þetta kemur fram í könnum sem MMR stóð fyrir á tímabilinu 9. til 14. október 2014 um viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til horfa í íslensku hagkerfi sem og mikilvægra þátta í rekstarumhverfi þeirra eigin fyrirtækja til næstu 12 mánaða. Í júlí á þessu ári sögðust 81,1% stjórnenda telja að hagkerfið myndi vaxa og í desember 2013 sögðust 58,9% telja að hagkerfið myndi vaxa á næstu 12 mánuðum. Meirihluti stjórnenda er bjartsýnn á aukna veltu og arðsemi síns fyrirtækisins á næstu 12 mánuðum. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 68,4% að velta myndi aukast á næstu 12 mánuðum og 55,6% töldu að arðsemi myndi aukast. Í desember 2013 sögðust 60,7% stjórnenda telja að velta myndi aukast og 43,7% sögðust telja að arðsemi síns fyrirtækis myndi aukast á næstu 12 mánuðum. Meiri bjartsýni ríkir meðal stjórnenda á aukna samkeppnishæfni og aukna eftirspurn eftir vöru/þjónustu síns fyrirtækis á næstu 12 mánuðum. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 51,4% stjórnenda telja að samkeppnishæfni síns fyrirtækis myndi aukast á næstu 12 mánuðum, borið saman við 45,0% í júlí 2014. 68,7% sögðust telja að eftirspurn eftir vörum/þjónustu fyrirtækisins myndi aukast á næstu 12 mánuðum, borið saman við 55,0% í desember 2013. Tæpur þriðjungur stjórnenda taldi að starfsmönnum muni fjölga og 69% stjórnenda taldi að launakostnaður muni aukast. Úrtakið var stjórnendur í fyrirtækjum á Íslandi þ.e.a.s forstjórar, framkvæmda-, fjármála- og markaðsstjórar. Svarfjöldin var 602 einstaklingar.mynd/mmr
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira