Viðskipti innlent

Arðgreiðslur skila mun meira en fjárlög áætluðu

Elimar Hauksson skrifar
Daníel segir að ef aðhalds verði gætt í ríkisrekstri megi búast við að tekjuafgangur ríkissjóðs verði nærri 20 milljörðum króna.
Daníel segir að ef aðhalds verði gætt í ríkisrekstri megi búast við að tekjuafgangur ríkissjóðs verði nærri 20 milljörðum króna.
Í fjárlagafrumvarpi ársins 2014 var gert ráð fyrir 8,1 milljarða króna arð í ríkissjóð frá fjármálastofnunum. Sé miðað við að tuttugu milljarða króna arðgreiðsla Landsbankans verði samþykkt á aðalfundi bankans má búast við að heildararðgreiðslur til ríkissjóðs frá viðskiptabönkunum þremur verði 21,1 milljarður en það er 13 milljörðum meira en fjárlög gerðu ráð fyrir.

Ríkið er aðaleigandi Landsbankans með 97,7% eignarhlut en arðgreiðslur frá hinum bönkunum eru töluvert lægri, tæpur milljarður vegna 13% hlutar í Arion banka og tæpur hálfur milljarður vegna 5% hlutar í Íslandsbanka.

Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir þetta vera góð tíðindi fyrir ríkissjóð og ef aðhalds verði gætt í ríkisrekstri megi búast við að tekjuafgangur ríkissjóðs verði nærri 20 milljörðum í stað tæplega milljarðs eins og fjárlög gerðu ráð fyrir.

Daníel bætir við að búast megi við að tekjuskattur á lögaðila verði hærri en áætlað var vegna góðrar afkomu skráðra félaga hér á landi.

„Það eru umtalsverðar arðgreiðslur til annarra eigenda bankanna en ríkissjóðs og af því innheimtir ríkið um 20 prósenta tekjuskatt. Ef við reiknum þær tekjur auk skattekna af skráðum félögum þá má reikna með að til viðbótar komi um sex milljarðar,“ segir Daníel.

Bjarni Benediktsson segir þetta góð tíðindi fyrir ríkissjóð. 

„Ég sé fyrir mér að þetta auki svigrúm til þess að lækka til dæmis skuldir og koma til móts við óvænt áföll ef einhver verða,“ segir Bjarni og bætir við að ríkið hafi lagt gríðarlega fjármuni í að tryggja endurreisn bankakerfisins og nú horfi til þess að ríkið geti endurheimt þann mikla kostnað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×