Hagnaður Arion banka tæplega 13 milljarðar Stefán Árni Pálsson skrifar 26. febrúar 2014 19:37 Arion banki hefur dregið úr áhættu í rekstri með aukinni langtímafjármögnun. Vísir/Pjetur
Hagnaður Arion banka á árinu 2013 nam 12,7 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 17,1 milljarð króna árið 2012 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bankanum. Arðsemi eigin fjár var 9,2% samanborið við 13,8% árið 2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 10,5% en var 11,4% árið 2012. Heildareignir námu 938,9 milljörðum króna samanborið við 900,7 milljarða króna í árslok 2012. Ný útlán jukust um 60% milli ára og námu tæplega 120 milljörðum króna á árinu. Útlán til viðskiptavina aukast um 12% milli ára, einkum vegna nýrra lána tengdum uppgjöri á Drómaskuldabréfi og námu í árslok 636 milljörðum króna, samanborið við 567 milljarða króna í árslok 2012. Arion banki hefur dregið úr áhættu í rekstri með aukinni langtímafjármögnun og hækkuðu hlutfalli lána til einstaklinga, en þau námu í árslok tæpum 49% af heildarlánum til viðskiptavina. Ársreikningur samstæðu Arion banka er endurskoðaður af endurskoðendum bankans, Ernst & Young ehf. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 2,5 milljörðum króna sem er sami hagnaður og á sama tímabili árið 2012. Arðsemi eigin fjár á fjórða ársfjórðungi var 7,4% samanborið við 8,2% á sama ársfjórðungi árið 2012 og arðsemi af kjarnastarfsemi nam 7,7% en var 7,9% á fjórða ársfjórðungi ársins 2012. Eiginfjárhlutfall bankans í árslok var 23,6% en var 24,3% í árslok 2012.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent