„Bankinn fær af einhverjum ástæðum ekki fullan afslátt“ Stefán Árni Pálsson skrifar 22. janúar 2014 14:03 MP-banki hefur sent frá sér yfirlýsingu. visir/arnaldur
Málefni MP banka hafa verið mikið í fjölmiðlum að undanförnu en bankinn hefur nú sent frá sér yfirlýsingu varðandi 50 milljarða frískuldamarkið. Ákvæði um 50 milljarðar frískuldamarkið kom inn í frumvarp um tekjuhlið fjárlaga í desember. Bankaskatturinn greiðist af heildarskuldum banka- og fjármálafyrirtækja í slitameðferð. Frískuldamarkið þýðir að ekki er greiddur skattur af fyrstu 50 milljörðunum sem viðkomandi banki skuldar. Bankaskattur sem MP banki greiðir lækkaði um 78 prósent við breytinguna á frumvarpinu. Það hefur vakið upp spurningar vegna tengsla bankans við ríkisstjórnina. Í umsögn sem bárust efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis var lagt til að setja frískuldamark í lögin þar sem bankaskatturinn var of íþyngjandi fyrir smærri fjármálafyrirtæki og sparisjóði. Fram kemur í yfirlýsingunni að stjórn bankans telji sig knúna til að koma á framfæri upplýsingum og leiðréttingum. Fram kemur að sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki er ekki einungis lagður á innlán og hann er ekki aðeins lagður á banka. Bankaskatturinn mun vera lagður á allar skuldir allra fjármálafyrirtækja sem eru viðskiptabankar, sparisjóðir, aðrar lánastofnanir eða aðrir sem hafa fengið leyfi til að taka við innlánum. Samkvæmt opinberum lista Fjármálaeftirlitins séu starfandi fjármálafyrirtæki sem falla undir skattstofn bankaskattsins 16 talsins og munu 14 þeirra hafa verið í slitameðferð í lok ársins 2012. Þrjú þeirra séu yfirgnæfandi að stærð og eigið fé þeirra um 98% af eigin fé fjármálafyrirtækja. Þau tvö prósentustig sem uppá vantar skiptast á 13 lítil fjármálafyrirtæki. Fram kemur í tilkynningunni að fyrir 12 þeirra nýtist frískuldamarkið fullkomlega, það er þau hafa fengið 100% afslátt af bankaskattinum með frískuldamarkinu. Aðeins eitt þeirra, MP banki, fær af einhverjum ástæðum ekki fullan afslátt þar sem frískuldamarkið hefur verið skilgreint undir heildarskuldum bankans.Hér að neðan má lesa fréttatilkynninguna í heild sinni:Í ljósi þess að MP banki og nafngreindir starfsmenn hans hafa dregist inn í pólitíska umræðu um frískuldamark á sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki telur stjórn bankans sig knúna til að koma eftirfarandi upplýsingum og leiðréttingum á framfæri.MP banki er eina litla fjármálafyrirtækið sem greiðir bankaskattSérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, svokallaður bankaskattur, er ekki einungis lagður á innlán og hann er ekki aðeins lagður á banka. Bankaskatturinn er lagður á allar skuldir allra fjármálafyrirtækja sem eru viðskiptabankar, sparisjóðir, aðrar lánastofnanir eða aðrir sem fengið hafa leyfi til að taka við innlánum. Skatturinn er einnig lagður á fjármálafyrirtæki í slitameðferð. Í frétta- og málflutningi hefur skipulega verið reynt að telja almenningi trú um að frískuldamark bankaskatts nýtist MP banka betur en öðrum.Samkvæmt opinberum lista Fjármálaeftirlitins (FME) eru starfandi fjármálafyrirtæki sem falla undir skattstofn bankaskattsins 16 talsins og samkvæmt ársskýrslu FME voru 14 fjármálafyrirtæki í slitameðferð í lok árs 2012. Af starfandi fjármálafyrirtækjum eru þrjú þeirra yfirgnæfandi að stærð. Eigið fé þeirra er um 98% af eigin fé framangreindra starfandi fjármálafyrirtækja.Eftirstandandi tvö prósentustigin skiptast á 13 lítil fjármálafyrirtæki. Fyrir 12 þeirra nýtist frískuldamarkið fullkomlega, það er þau hafa fengið 100% afslátt af bankaskattinum með frískuldamarkinu. Aðeins eitt þeirra, MP banki, fær af einhverjum ástæðum ekki fullan afslátt þar sem frískuldamarkið hefur verið skilgreint undir heildarskuldum bankans.Hvernig einstaka stjórnmálamenn og fréttamenn fá það út að frískuldamarkið nýtist MP banka betur en öðrum og hafi jafnvel verið sérsniðið fyrir bankann, ber vott um óvönduð vinnubrögð við að kynna sér opinberar upplýsingar.MP banki hefur ekki valdið ríkissjóði tjóniRíkisendurskoðun gaf út skýrslu í júní 2012 um fyrirgreiðslu ríkisins við fjármálafyrirtæki og stofnanir í kjölfar bankahrunsins. Þar eru dregnar saman helstu upplýsingar um framlög og skuldbindingar ríkisins vegna fjármálafyrirtækja og stofnana eftir fall bankakerfisins haustið 2008. Þar kemur fram að verulegir fjármunir voru lagðir í endurreisn stóru bankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankann auk þess sem lánafyrirgreiðslur til bankanna, bæði víkjandi fjármögnun þeirra og fjármögnun með veði, voru afar hagstæðar.Ríkisendurskoðun rekur einnig fyrirgreiðslu ríkisins til fjárfestingarbanka og sparisjóða sem ýmist var í formi meðgjafar og ábyrgðar eða fólust í hagstæðum endurgreiðslum lána. Metið tap ríkissjóðs og Seðlabanka vegna tapaðra krafna er um 267,2 milljarðar króna og þá eru ekki tekin með vaxtagjöld sem ríkissjóður hefur þurft að taka á sig vegna þessara skuldbindinga.Í skýrslunni er hvergi minnst á MP banka enda hefur ríkissjóður ekki lagt fé til bankans. Í apríl 2011 keyptu rúmlega 40 fjárfestar rekstur, eignir og skuldir á fullu verði af eigendum gamla MP banka og hafa lagt nýjum banka til tæplega 6 milljarða króna í nýtt hlutafé. Bankinn er því í dag eini sjálfstæði einkabankinn sem ekki hefur hlotið ríkisaðstoð eða er í eigu ríkisins að hluta eða öllu leyti.Í umfjöllun síðustu daga hefur verið vísað til þess tjóns sem bankinn á að hafa valdið Seðlabankanum með endurhverfum viðskiptum. MP banki greiddi upp endurhverf lán sín að fullu og stóð við allar skuldbindingar sínar gagnvart Seðlabanka og ríki auk þess sem peningamarkaðssjóður MP banka naut ekki ríkisstyrkja eins og peningamarkaðssjóðir föllnu bankanna.Þótt ofangreindar staðreyndir hafi legið fyrir opinberlega, virðist sem tilteknir fjölmiðlar og stjórnmálamenn hafi af einhverjum ástæðum litið algjörlega fram hjá þeim og í staðinn ítrekað endurtekið sömu rangfærslurnar í fréttaflutningi og opinberum ummælum.Stjórn MP banka vonast til þess að í framtíðinni verði það sem sannara reynist ofan á í fréttaflutningi og opinberri umræðu um bankann og málefni honum tengd.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent