Viðskipti innlent

Jóhanna mætti þrisvar á Viðskiptaþing

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Steingrímur J. Sigfússon segir það undarlega söguskoðun að fyrrverandi forsætisráðherra hafi aldrei mætt á Viðskiptaþing.
Steingrímur J. Sigfússon segir það undarlega söguskoðun að fyrrverandi forsætisráðherra hafi aldrei mætt á Viðskiptaþing.
„Sú undarlega söguskýring hefur farið á flot að Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra hafi aldrei mætt á viðskiptaþing,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra í aðsendri grein á Vb.is.

Vísar hann þar til orða Bjarna Benediktssonar á Alþingi í síðustu viku sem og ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands síðastliðinn miðvikudag þar sem hann sagði að hlé hefði orðið á þeirri hefð undanfarin ár að forsætisráðherra ávarpaði þingið. Það hefði verið miður þar sem Viðskiptaþing væri breiður vettvangur forsvarsmanna stórra sem smárra fyrirtækja í landinu.

Steingrímur segir hið rétta vera að Jóhanna hafi verið ræðumaður á Viðskiptaþingi árin 2009, 2010 og 2011 en árið 2012 hafi hún ekki séð sér fært að mæta.

Aðstandendur þingsins kusu að gera fjarveru hennar að sérstöku umtalsefni í stað þess að taka forföll hennar gild eða leyta eftir staðgengli í hennar stað. Ég sótti þingið það ár eins og oftast þegar ég hef við komið. Ég spurði forráðamenn Viðskiptaráðs af hverju þeir hefðu þá ekki leitað til mín sem staðgengils eða vara forsætisráðherra, í stað þess að blása fjarveruna út? Þeim sem eitthvað höfðu fylgst með mátti þá vera orðið sæmilega ljóst að ég gegndi jafnan störfum forsætisráðherra í fjarveru eða forföllum Jóhönnu og eins og um var samið milli stjórnarflokkanna. Fátt varð um svör," segir Steingrímur í grein sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×