TAL stefnir Vodafone Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 17. febrúar 2014 10:16 VÍSIR/PJETUR
Tal hefur stefnt Vodafone fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Tal vill að viðurkennd verði skaðabótaskylda Vodafone vegna riftunar á fjarskiptasamningum félaganna 13. september 2012. Vodafone telur kröfur TAL tilhæfulausar að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Vodafone. Félagið muni verjast kröfunum af fullum þunga. Þar sem engar fjárkröfur eru hafðar uppi í málinu af hálfu TAL geti Vodafone ekki lagt mat á möguleg fjárhagsleg áhrif. Viðurkenni dómstólar skaðabótaskyldu Vodafone gæti TAL síðar farið fram á bætur frá Vodafone. Ágreiningur vegna ógreiddra reikninga Í tilkynningunni segir að ágreiningur hafi verið uppi á milli Vodafone og Tals vegna ógreiddra reikninga sem Vodafone gaf út á Tal. Forsaga málsins sé sú að Tal og Vodafone gerðu með sér endursölusamning um að Tal keypti tiltekna fjarskiptaþjónustu af Vodafone í heildsölu. Í tilkynningunni segir svo: „Á árinu 2011 kom upp ágreiningur milli félaganna varðandi reikninga sem Fjarskipti gáfu út á hendur Tali vegna umframgagnamagns, þ.e. kaupa Tals á gagnaflutningi umfram tiltekin mörk, og vegna innsláttar pantana en samkvæmt samningi fyrirtækjanna hafa Fjarskipti umsjón með innslætti pantana vegna viðskiptavina Tals gegn gjaldi. Á fyrri hluta árs 2012 greiddi Tal hluta af þeim reikningum sem ágreiningur ríkir um en eftir stendur ágreiningur um fimm reikninga vegna ársins 2011. Til viðbótar við þær fjárhæðir sem um ræðir hafa Fjarskipti uppi kröfu á hendur Tali um greiðslu áfallandi dráttarvaxta, innheimtu- og málskostnaðar.Þann 31. mars 2011 gaf Tal út reikning á hendur Fjarskiptum sem fyrirtækið kveðst byggja á kröfu um endurgreiðslu vegna meintrar ofrukkunar Fjarskipta vegna fastlínuþjónustu í heildsölu. Stjórnendur Fjarskipta telja kröfuna tilhæfulausa. Fjarskipti undirbúa nú málshöfðun á hendur Tali til greiðslu þeirra fimm krafna frá árinu 2011 sem ágreiningur er um og að framan er lýst. Reikna má með að Tal krefjist sýknu af kröfum Fjarskipta og hafi jafnframt uppi gagnkröfu á hendur Fjarskiptum vegna framangreinds reiknings frá 31. mars 2011. Það er afstaða Fjarskipta að samkvæmt fyrirliggjandi samningum Fjarskipta og Tals sé greiðsluskylda Tals ótvíræð. Fari ágreiningur Fjarskipta og Tals fyrir dóm er þó ekki hægt að ábyrgjast hver lokaniðurstaða málsins verður. Versta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félagið tapaði öllum kröfum sínum á hendur Tali auk þess að vera dæmt til að endurgreiða Tali fyrrnefnda kröfu þeirra. Verði niðurstaðan sú gæti slíkt haft í för með sér neikvæð áhrif á rekstrarhagnað félagsins að fjárhæð 43,2 m.kr. Besta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félaginu væru dæmdar fullar greiðslur úr hendi Tals auk þess sem framangreindri kröfu Tals á hendur Fjarskiptum yrði vísað frá. Í slíku tilviki væru heildaráhrifin á rekstrarhagnað félagsins jákvæð um 109,3 m.kr. Til viðbótar við þá fimm reikninga sem að framan greinir, sem eru vegna ársins 2011, hefur Tal haldið eftir hluta af greiðslum vegna reikninga útgefnum á árinu 2012. Vanskilin gætu haft neikvæð áhrif á rekstrarhagnað Fjarskipta að fjárhæð 21 m.kr. Útistandandi kröfur vegna ársins 2012 munu fara í hefðbundið innheimtuferli af hálfu Fjarskipta en kröfur vegna ársins 2011 munu fara fyrir dómstóla líkt og að framan greinir. Aðilar hafa undirritað samkomulag þess efnis að Tal hætti alfarið í viðskiptum við Fjarskipti þann 13. desember 2012. Tal hefur þó möguleika á framlengingu þess tímabils til 13. febrúar 2013 svo fremi að beiðni þess efnis berist Fjarskiptum fyrir 1. desember 2012.“
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent