Ríkið fær helmingi lægri skatttekjur fyrir hvern ferðamann Elimar Hauksson skrifar 16. janúar 2014 07:00 Árið 2002 voru uppreiknaðar skatttekjur tæplega 60 þúsund á hvern ferðamann samanborið við rétt rúmlega 30 þúsund árið 2012. Mynd/Daníel
Skatttekjur af hverjum ferðamanni lækka umtalsvert á milli ára. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Oddnýjar G. Harðardóttur um tekjur ríkissjóðs af hverjum ferðamanni. Tæplega 300 þúsund ferðamenn komu hingað til lands árið 2002 samanborið við 670 þúsund árið 2013 og voru beinar skatttekjur af hverjum ferðamanni á verðlagi ársins 2013 helmingi lægri árið 2012 heldur en árið 2002. Árið 2002 voru uppreiknaðar skatttekjur tæplega 60 þúsund á hvern ferðamann samanborið við rétt rúmlega 30 þúsund árið 2012. Oddný telur að skoða þurfi rekstrarumhverfi ferðaþjónustu hér á landi með hliðsjón af þessum svörum. „Það er rík ástæða til þess að skoða rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar, miðað við svör ráðherra. Þegar við erum með atvinnugrein sem er að vaxa svona hratt, þá verðum við að skoða hvort við viljum að hún vaxi í þessu umhverfi,“ segir Oddný. Í svari ráðuneytisins kemur fram að leiða megi að því sterkar líkur að mikil fjölgun ferðamanna feli í sér breytingar á samsetningu hópsins. Ýmsar kannanir bendi til þess að ferðamenn eyði lægri upphæðum hér á landi nú en þeir gerðu áður. Þá hafi gistimöguleikum hérlendis til dæmis fjölgað verulega, sérstaklega í ódýrari kantinum, sem væntanlega eigi sinn þátt í að skapa grundvöll fyrir þeirri fjölgun sem orðið hefur. Lækkun virðisaukaskatts 1. mars 2007 úr 14% í 7%, á matvöru, veitinga- og gistiþjónustu, skýri væntanlega einnig hluta af þessari þróun þar sem þau viðskipti veiti ekki rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts eins og kaup á varanlegum varningi.
Mest lesið Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Sjá meira