Viðskipti innlent

Erlendir aðilar eiga 327 milljarða króna

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Fjármála- og efnhagasráðuneytið birti greinagerðina a í dag.
Fjármála- og efnhagasráðuneytið birti greinagerðina a í dag. Vísir/GVA
Svokallaðar aflandskrónur, íslenskar krónur í eigu erlendra aðila, námu 327 milljörðum króna í lok síðasta árs. Þetta kemur fram í greinagerð fjármála- og efnhagsráðuneytisins um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta sem birt var i dag.

Þar kemur fram að í kjölfar hrunsins árið 2008 hafi erlendir aðilar átt 565 milljarðar.

Einnig segir í greinagerðinni að Seðlabankinn hafi lækkað stöðu aflandskrónanna með sérstökum viðskiptum og útboðum í samræðmi við áætlun um afnám hafta frá mars árið 2011.

Áætlun um afnám haftana miðar fyrst og fremst að því að draga úr áhættu tengdri aflandskrónum.

Framkvæmdastjórn ESB vann að losun fjármagnshaftana

Í greinagerðinni kemur einnig fram að framkvæmdastjórn ESB hafi aðstoðað vinnuhóp íslenskra stjórnvalda við áfangaskýrslu um losun fjármagnshaftana fyrri part árs 2013:

„[F] fundað [var] 22. janúar 2013 í Frankfurt í tengslum við þávinnu. Formennska vinnuhópsins var í höndum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, en SeðlabankiEvrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tóku einnig þátt í starfi hópsins. 15. nóvember 2013 tilkynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fjármála- og efnahagsráðuneytinu um að þátttöku framkvæmdastjórnarinnar í vinnuhópnum ekki gæti orðið af frekari þátttöku í nefndarstarfinu, í ljósiákvörðunar ríkisstjórnar Íslands um hlé á aðildarviðræðum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×