Fimm fyrirtæki tilnefnd markaðsfyrirtæki ársins Stefán Árni Pálsson skrifar 31. október 2014 12:37 Frá verðlaunaafhendingunni á síðasta ári.
Markaðsverðlaun ÍMARK 2014, samtaka markaðsfólks á Íslandi, verða afhent fimmtudaginn 6. nóvember á Hótel Hilton. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun veita markaðsmanni og markaðsfyrirtæki ársins 2014 verðlaunin. Að þessu sinni eru fimm fyrirtæki tilnefnd til verðlaunanna Markaðsfyrirtæki ársins: Íslandsbanki, Landsbankinn, Nova, Ölgerðin og Össur. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa verið áberandi í markaðsmálum á líðandi ári og sannað þykir að sýnilegur árangur hafi náðst. Valið byggir á ítarlegu ferli dómnefndar þar sem lagt er mat á fagmennsku við markaðsstarfið, árangur og að fjárhagslegt öryggi sé til staðar. Verðlaunin Markaðsmaður ársins eru veitt einstaklingi, sem hefur sýnt framúrskarandi árangur í markaðsstarfi á líðandi ári. Við valið er leitast við að fá sem fjölbreyttastar skoðanir úr atvinnulífinu. ÍMARK hefur veitt Markaðsverðlaunin frá árinu 1991 og eru verðlaunin afhent í nóvember ár hvert. Markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku í markaðsstarfi íslenskra fyrirtækja. Grímur Sæmundssen framkvæmdastjóri Bláa Lónsins var valinn Markaðsmaður ársins 2013. Að hans mati er það mikilvægasta við verðlaunin sú viðurkenning og hvatning sem verðlaunin fela í sér til allra starfsmanna fyrirtækisins. „Á þessu ári munum við taka á móti 700.000 gestum, upplifun þeirra er einn mikilvægasti þáttur markaðssetningar okkar.“ Dominos var valið Markaðsfyrirtæki ársins 2013. Magnús Hafliðason markaðsstjóri Dominos segir það hafi verið mikill heiður fyrir markaðsstarf fyrirtækisins að hljóta verðlaunin. „Þau hafa hvatt okkur til þess að halda áfram og gera enn betur á komandi árum,“ segir hann. María Hrund Marinósdóttir markaðsstjóri VÍS og fulltrúi í stjórn ÍMARK mun stýra dagskrá verðlaunahendingarinnar. Þá munu Grímur Sæmundssen framkvæmdastjóri Bláa Lónsins og markaðsmaður ársin 2013 og Dr. Þórhallur Guðmundsson dósent í markaðsfræðum við Háskóla Íslands flytja erindi. Hádegismatur verður í boði og skráning fer fram á vef ÍMARK.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira