Nýnemum Verzló gæti fækkað um helming Haraldur Guðmundsson skrifar 31. október 2014 08:50 Ríkið greiðir nú með 1.430 nemendum skólans á ári. Visir/Vilhelm
Verzlunarskóli Íslands gæti þurft að fækka nýnemum um helming næsta haust og segja upp starfsfólki ef fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár verður samþykkt. „Í frumvarpinu er verið að skerða fjölda þeirra nemenda sem ríkið er tilbúið að borga með á hverju ári og þetta hefur þessi áhrif á okkur,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskólans. Skólinn tekur inn yfir 300 nýnema á ári en að sögn Inga stefnir í að þeir verði einungis um 150 þegar skólaárið 2015/2016 hefst. Fari svo gæti Verzlunarskólinn þurft að fækka stöðugildum um níu. „Það er þó ekki öruggt og það þýðir ekki endilega að níu kennarar missi starfið því hér vinna margir í meira en einu stöðugildi. Einnig gæti svo farið að kennarar sem hafa verið hér í eitt eða tvö ár fái ekki fastráðningu. Þetta gæti þó líka endað með því að við tökum inn fleiri nemendur á kostnað skólans sem hefði þá einhver áhrif.“ Ingi segir skólann fá um 500 umsóknir frá nýútskrifuðum grunnskólanemum á ári sem velji hann sem fyrsta val. Að auki er skólinn annað val hjá yfir 200 umsækjendum. „Hluti af þessari fækkun ársnema til Verzlunarskólans kom til síðastliðið sumar en við fengum þær upplýsingar svo seint að við gátum ekki brugðist við og sagt nei við nemendur sem höfðu fengið inni. Síðan kemur ennþá meiri niðurskurður núna og við getum ekkert brugðist við þessu fyrr en um mitt almanaksárið og því kemur allur skellurinn næsta haust,“ segir Ingi. Félag framhaldsskólakennara hefur gagnrýnt áform ríkisins um fjárveitingar til framhaldsskólanna og sagt þær takmarka aðgengi 25 ára og eldri að námi á framhaldsskólastigi. Ingi segir þessa breytingu ekki hafa mikil áhrif á stöðu skólans. „Það er einhver hópur nemenda sem er í fjarnámi úr þessum aldurshópi en hann er ekki stór. Ef þetta fer svona, sem er ekkert öruggt því ég er ekki búinn að gefa upp alla von, þá stefnir í þessa fækkun nýnema með tilheyrandi áhrifum.“
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira