Guðmundur Ingi nýr forstjóri Landsnets Stefán Árni Pálsson skrifar 31. október 2014 11:17 Guðmundur Ingi hefur verið aðstoðarforstjóri Landsnets frá 2008. mynd/aðsend
Stjórn Landsnets hefur ráðið Guðmund Inga Ásmundsson í starf forstjóra fyrirtækisins. Stjórnarformaður Landsnets, Geir A. Gunnlaugsson, tilkynnti um ráðninguna á fundi með starfsfólki í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Guðmundur Ingi hefur verið aðstoðarforstjóri Landsnets frá árinu 2008 og hefur víðtæka og mikla reynslu á starfssviði og starfsumhverfi Landsnets. Hann tekur við starfi forstjóra um áramót af Þórði Guðmundssyni, sem hefur stýrt fyrirtækinu frá stofnun þess en lætur nú af störfum að eigin ósk. Guðmundur Ingi er fæddur 1955. Hann lauk mastersgráðu í raforkuverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet árið 1982. Hann hóf störf hjá Landsvirkjun að námi loknu sem sérfræðingur í kerfisrannsóknum og var ráðinn yfirverkfræðingur raforkukerfissviðs árið 1992 og kerfisstjóri Landsvirkjunar ári síðar. Þegar Landsnet tók til starfa í ársbyrjun 2005 var Guðmundur ráðinn framkvæmdastjóri kerfisstjórnar Landsnets með ábyrgð á stjórnun raforkukerfisins, gæðum, rekstraráhættu og uppbyggingu þess. Hann varð aðstoðarforstjóri Landsnets árið 2008 með m.a. ábyrgð á að leiða uppbyggingu fyrirtækisins og flutningskerfisins til framtíðar ásamt þróunar- og nýsköpunarverkefnum. Guðmundur Ingi var fulltrúi Landsvirkjunar og síðar Landsnets í markaðsnefnd NORDEL, fulltrúi Landsnets í aðalstjórn ENTSO/E í Brussel og situr í stýrihópi ENTSO/E vegna rannsóknar og þróunarmála. Þá var hann fenginn til að leiða stofnun Alstom-samtakanna fyrir notendur orkustjórnkerfa í Evrópu og Asíu og var fyrsti formaður þeirra. Hann undirbjó m.a. á sínum tíma stofnun fjarskiptafélags Landsvirkjunar og Landsnets sem annast fjarskipti í orkukerfinu, hann er stjórnarmaður í Icelandic Geothermal og situr í stjórn Orkufjarskipta hf. og var stjórnaformaður þess félags um tíma.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Sjá meira