Vefur 66°Norður fær alþjóðleg verðlaun Randver Kári Randversson skrifar 20. júní 2014 15:30 Teymið sem hannaði vef 66°Norður: Steinar Ingi Farestveit, Ólafur Örn Nielsen og Benedikt D. Valdez Stefánsson.
Stafræna vöruþróunarfyrirtækið Kolibri hlaut Umbraco-verðlaunin fyrir hönnun á nýjum vef íslenska fataframleiðandans 66°Norður á verðlaunahátíð sem fram fór í Kaupmannahöfn á dögunum. Keppt var í þremur flokkum og vann Kolibri verðlaun fyrir best hönnuðu síðuna. Nýi vefurinn þótti sýna vörur 66°Norður á mjög áþreifanlegan hátt og vera framúrskarandi dæmi um góða hönnun. Verðlaunagripurinn sem fylgir útnefningunni er óvenjulegur einhyrningur með gullslegið horn. Steinar Ingi Farestveit hjá Kolibri stýrði hönnun vefsins en verkefnið var unnið í náinni samvinnu við markaðsdeild 66°Norður, auglýsingastofuna Jónsson & Le’Macks og hugbúnaðarfyrirtækið Vettvang. „Þegar við byrjuðum að vinna vefinn kom upp sú hugmynd að reyna að koma vörum 66°Norður á framfæri á áþreifanlegri hátt en hefðbundnar vefverslanir gera. Við vildum að notendur vefsins fengju það sama, eða jafnvel meira, út úr því að skoða vöruna í vefverslunni heldur en í verslunum fyrirtækisins. Við náðum þessu fram með því að einbeita okkur að sjónræna þættinum. Það eru stórar myndir af hverri vöru sem eru eins og hálfgerður bakgrunnur sem aðrar upplýsingar hvíla á. Þannig getur kaupandinn séð áferð og einkenni fatnaðarins betur en í hefðbundnum myndagluggum á vefnum,“ segir Steinar Ingi Farestveit hjá Kolibri. Kolibri varð til nýverið eftir sameiningu Form5 og Spretts. Form5 vann til allra helstu vefverðlauna sem veitt voru hér á landi í fyrra fyrir vef Nikita Clothing, og var hann þ.m.t. valinn besti vefurinn á SVEF, vefur ársins á NEXPO og hlaut Form5 verðlaun FÍT fyrir best hönnuðu vefsíðuna.
Mest lesið Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Sjá meira