Bóksölurisinn WHSmith vill opna verslun í Leifsstöð Haraldur Guðmundsson skrifar 20. júní 2014 07:00 WHSmith selur meðal annars bækur, dagblöð, lestölvur, leikföng og gjafakort. Mynd/WHSmith
Breska bókaverslanakeðjan WHSmith hefur óskað eftir verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Starfsmaður fyrirtækisins var samkvæmt heimildum Fréttablaðsins viðstaddur kynningarfund Isavia vegna forvals á verslunar- og veitingarekstri í brottfararsal flugstöðvarinnar þann 19. mars síðastliðinn. Hann hefur einnig sent stjórnendum nokkurra bókaútgáfna hér á landi tölvupósta þar sem óskað er eftir upplýsingum fyrir úttekt breska fyrirtækisins á íslenska bókamarkaðinum. Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, kynnti í vetur áform um breytingar á brottfararsal flugstöðvarinnar. Fyrirtækið efndi til forvals í mars þar sem fyrirtækjum í verslunar- og veitingarekstri var boðið að sækja um aðstöðu í flugstöðinni. Forvalinu lýkur í haust og breytingum á salnum á að ljúka næsta vor.Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugstöðvarinnar, vill ekki staðfesta hvort WHSmith sé þátttakandi í forvalinu. Isavia mun að hans sögn ekki tjá sig um hvaða fyrirtæki taka þátt. „Það er mikill áhugi erlendis frá og erlendir aðilar hafa sent inn umsóknir um aðstöðu í flugstöðinni,“ segir Hlynur. „Frestur til að skila inn hugmyndum og tilboðum rennur út 25. júní næstkomandi. Næstu tvo til þrjá mánuðina á eftir förum við á samningsstigið og munum þá skoða öll tilboðin og setjast niður með þeim sem við teljum álitlegasta,“ segir Hlynur. Eymundsson hefur rekið bókaverslun í flugstöðinni síðastliðin ár. Samningar um verslunarrekstur þar renna út í lok þessa árs. Engar upplýsingar fengust um það hvort Eymundsson væri þátttakandi í forvali Isavia þar sem ekki náðist í stjórnendur fyrirtækisins.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira