Viðskipti innlent

Launavísitala í maí hækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði

Randver Kári Randversson skrifar
Vísitala launa hækkaði um 0,4% í maí frá fyrra mánuði.
Vísitala launa hækkaði um 0,4% í maí frá fyrra mánuði. Vísir/Valli
Launavísitala í maí 2014 er 480,4 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,2%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Vísitala kaupmáttar launa í maí 2014 er 117,0 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,7%.

Í launavísitölu maímánaðar gætir áhrifa kjarasamninga fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga við nokkur stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru í mars og apríl 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×