Strætó gerir hótelum tilboð um farmiðakort Óli Kristján Ármannsson skrifar 21. febrúar 2014 11:07 Á leið í strætó.
Framhald verður á tilraunaverkefni þar sem hótelgestum gefst kostur á að nýta sér þjónustu Strætó bs. Í mars í fyrra sömdu Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura við Strætó um kaup á farmiðakortum fyrir gesti sína. „Við lítum á þetta sem hluta af þjónustunni,“ segir Ingólfur Haraldsson, hótelstjóri á Hilton. Um leið lagði hótelið af skutlþjónustu. Nú segir Ingólfur þjónustuna aukna, enda hafi hótelið ekki getað boðið upp á þá tíðni ferða sem Strætó geri. „Og gestir nýta sér þetta töluvert vel.“Ingólfur segir kostnað hótelsins vegna ferða gesta líkast til svipaðan og áður. „En þetta er líka hluti af því að vinna eftir grænum stöðlum og vistvænum. Þar leika almenningssamgöngur hlutverk.“ Um leið batni nýting strætisvagna utan háannaferðatíma heimafólks. Heilt yfir segir Ingólfur verkefnið hafa gefist vel, enda ferðafólk utan úr heimi alvant því að nýta almenningssamgöngur. Eina umkvörtunarefnið sé að strætó byrji ekki að ganga fyrr en á hádegi á sunnudögum. „Og það held ég að hljóti að vera einsdæmi í almenningssamgöngum í heiminum,“ segir hann. „En þetta snýr náttúrlega að fleirum en gestum okkar, svo sem fólki sem mæta þarf í vinnu á sunnudögum.“ Kolbeinn Óttarsson Proppé, upplýsingafulltrúi Strætó, segir tilraunina hafa mælst vel fyrir. „Með vorinu ætlum við í aukna kynningu á þessu og fá fleiri hótel með,“ segir hann.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira