Viðskipti innlent

Samninganefnd RSÍ skrifaði undir nýjan kjarasamning

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/rafis.is
Í gær skrifaði samninganefnd Rafiðnarsambands Íslands undir nýjan kjarasamning en viðræður hafa staðið yfir allt síðan kjarasamningur var felldur í lok janúar. Þetta kemur fram á vefsíðu sambandsins.

Nýr kjarasamningur er byggður á sáttatillögu Ríkissáttasemjara sem lögð var fram í dag til að reyna að leysa deiluna á milli aðila.

Helstu breytingar eru þær að orlofs- og desemberuppbætur hækka um samtals 32.300 krónur frá síðastgildandi kjarasamningi en skiptist hækkunin á þann veg að orlofsuppbót hækkar um 10.800 kr. og desemberuppbótin hækkar um 21.500 kr. eingreiðsla kemur til vegna janúarmánaðar upp á 14.600 kr. og gildir samningurinn til 28. febrúar 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×