Viðskipti innlent

Salóme er nýr framkvæmdastjóri Klaks Innovit

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Salóme hefur starfað sem forstöðumaður Opna háskólans í HR.
Salóme hefur starfað sem forstöðumaður Opna háskólans í HR. Vísir/Klak Innovit
Salóme Guðmundsdóttir, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Klak Innovit og tekur hún við af Kristjáni Frey Kristjánssyni, sem nú starfar hjá Meniga.

Salóme hefur starfað sem forstöðumaður Opna háskólans í HR frá árinu 2011, en hún hefur Bsc gráðu í viðskiptafræði frá HR og diplómagráðu í markaðssamskiptum og vörumerkjastjórnun frá EHÍ.

Hún hefur hefur einnig nýlega gengið til liðs við félagsskap LeiðtogaAuðar sem hefur það að marki að auka þátttöku og áhrif kvenna í atvinnulífinu.

Þorsteinn Gunnarsson, stjórnarformaður Klak Innovit, segir mikinn feng í að fá Salóme til liðs við fyrirtækið, enda sé hún ungur og kraftmikill stjórnandi.

Hún segir sjálf spennandi að taka við kyndlinum af Kristjáni og byggja á því góða starfi sem átt hafi sér stað hjá Klak Innovit á síðustu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×