Að óbreyttu fara öll verðmæti í vaxtagreiðslur Samúel Karl Ólason skrifar 15. apríl 2014 11:29 Viðskiptaráð Íslands segir nauðsynlegt að endurfjármagna lán á góðum kjörum. Annars gæti Ísland fests í vítahring hækkandi skulda og versnandi lánakjara. Vísir/Getty/Pjetur
Ekki er gefin góð mynd af skuldastöðu íslenska þjóðarbúsins í nýrri skoðun Viðskiptaráðs Íslands. Í skýrslunni er rætt um afnám gjaldeyrishaftanna og hvað þurfi til. Skýrslan heitir Heildarmynd af höftunum: Erlendar skuldir og forsendur afnáms. Í skýrslunni segir að til að styrkja langtímagrundvöll fyrir afnámi þurfi hagvaxtarhorfur að vera hagfelldar og skuldastaða hagkerfisins þurfi að vera sjálfbær. Þar að auki þurfi að tryggja að skammtímaútflæði fjármagns ógni ekki efnahagslegum stöðugleika. „Til að greiðslujöfnuður haldist jákvæður er því lykilatriði að móta heildstæða og trúverðuga langtímastefnu um uppbyggingu útflutningsgreina og raunvöxt hagkerfisins,“ segir í skýrslunni. Þá segir að erlenda skuldastaða Íslands sé neikvæð um 950 milljarða króna, eða um 53 prósentum af vergri landsframleiðslu. „Þrotabú gömlu bankanna skera sig síðan út en neikvæð áhrif vegna áætlaðs uppgjörs þeirra nema 44 prósentum af vergri landsframleiðslu, eða tæplega 800 milljörðum króna.“ Muni ekkert breytast munu öll verðmæti sem skapist í formi afgangs af vöru- og þjónustuviðskiptum fara í að greiða vexti af erlendum skuldum á næstu árum. Ísland er í flokki með þeim löndum sem stundum eru skammstöfuð PIIGS-löndin, en þau eiga það sammerkt að hafa lent í vandræðum með erlendar skuldir sínar í Evru-krísunni árin 2009-13. „Hærra skuldahlutfalli fylgir aukin áhætta auk þess sem miklar vaxtagreiðslur úr landi draga úr þrótti hagkerfisins til vaxtar.“ Án endurfjármögnunar núverandi skulda verður 750 milljarða króna halli á gjaldeyrisflæði til og frá Íslandi næstu sex árin. Þar að auki þarf að vera til staðar nægur gjaldeyrir til að greiða fyrir útgöngu þeirra sem vilja færa fjármuni sína úr landi við afnám haftanna. Þá segir að afnám haftanna muni að miklu leyti velta á því hvort innlendir aðilar geti mætt þessari miklu endurfjármögnunarþörf með sjálfbærum hætti. Ef ekki fáist nægilega góð kjör sé hætt við því að þjóðarbúið festist í vítahring sívaxandi skulda og verra aðgengi að endurfjármögnun. Einnig þarf að finna lausn á vanda fjármálakerfisins. Tveir af þremur stóru viðskiptabönkum hafa nú verið í óbeinni eigu erlendra kröfuhafa í fimm ár. Í skýrslunni segir að þar sem þeir séu ekki langtímaeigendur hafi þeir minni hag en ella af því að styðja við framtíðaruppbyggingu efnahagslífsins. Því sé mikið undir að skynsamleg niðurstaða náist sem allra fyrst hvað varðar uppgjör þrotabúanna.
Tengdar fréttir Rétti tíminn til endurfjármögnunar Greinandi eins stærsta fjárfestingafyrirtækis Bandaríkjanna segir aðstæður góðar fyrir Ísland. 14. apríl 2014 13:42 Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira
Rétti tíminn til endurfjármögnunar Greinandi eins stærsta fjárfestingafyrirtækis Bandaríkjanna segir aðstæður góðar fyrir Ísland. 14. apríl 2014 13:42