KPMG og Háskólinn á Bifröst gera samstarfssamning Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2014 13:26 Vilhjálmur rektor og Hlynur Sigurðsson KPMG. mynd/aðsend
Samstarfssamningur Háskólans á Bifröst og KPMG sem undirritaður var í dag á Bifröst felur í sér víðtækt samstarf til eflingar á faglegri þekkingu nemenda, kennara og starfsmanna KPMG á sviði opinberrar stjórnsýslu, reikningshalds, endurskoðunar og skattaréttar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá háskólanum. Markmiðið er að efla námsframboð Háskólans á Bifröst og styðja við atvinnuuppbyggingu á starfssvæði KPMG á Vesturlandi. KPMG leggur mikið upp úr þjónustu á landsvísu og er með starfsstöðvar víða um land m.a. í Borgarnesi og í Stykkishólmi. Sérfræðingar KPMG munu koma að kennslu við Háskólann á Bifröst, styðja valda nemendur við gerð lokaverkefna og taka þátt í rannsóknarvinnu og kynningu rannsókna. Fram kemur í tilkynningunni að leitast verði við að tengja rannsóknarvinnu akademískra starfsmanna Háskólans á Bifröst við ýmis viðfangsefni KPMG til þess að efla almenna þekkingu á fagsviðum skólans og KPMG. Háskólanemar á Bifröst geta leitað eftir starfsnámi hjá KPMG. Háskólinn á Bifröst mun gefa KPMG kost á að nýta gistikennara til fyrirlestrahalds í húsakynnum KPMG og vinna saman að skipulagningu funda og ráðstefna um áhugaverð málefni. Samstarfssamningurinn hefur mikla þýðingu fyrir bæði Háskólann á Bifröst og KPMG. Með samningnum styrkir Háskólinn á Bifröst tengsl sín við atvinnulífið í landinu og tryggir aðkomu færustu sérfræðinga að faglegu starfi skólans. KPMG leggur með samstarfinu mikilvægt framlag til aukinnar þekkingar og fagmennsku í íslensku atvinnulífi og fær á móti ákjósanlegan vettvang fyrir fræðilegan áhuga sérfræðinga sinna sem vilja viðhalda stöðu sinni í fremstu röð á fagsviðum sínum og ennfremur aðgang að nemendum sem hugsanlega verða framtíðarstarfsmenn félagsins eða viðskiptavina þess. Samstarfssamningurinn dregur vel fram hvernig atvinnulíf og menntastofnanir geta unnið saman til þess að bæta hag alls samfélagsins. KPMG og Háskólinn á Bifröst vænta farsællar og árangursríkrar samvinnu til langrar framtíðar á grundvelli samningsins.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Sjá meira