Viðskipti innlent

Loftorka framleiðir og reisir einingar í 100 herbergja hótel á Hverfisgötu

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Lóðin þar sem hótelið mun rísa er á milli Barónsstígs og Snorrabrautar þar sem verslunin Nexus var áður. Hótelið verður rúmir 4200 fermetrar.
Lóðin þar sem hótelið mun rísa er á milli Barónsstígs og Snorrabrautar þar sem verslunin Nexus var áður. Hótelið verður rúmir 4200 fermetrar.
Loftorka Borgarnesi mun framleiða og reisa einingar í 100 herbergja hótel að Hverfisgötu 103 í Reykjavík. Samningur milli Loftorku og SA-verks var undirritaður í dag. Skessuhorn segir frá. 

Lóðin þar sem hótelið mun rísa er á milli Barónsstígs og Snorrabrautar þar sem verslunin Nexus var áður. Hótelið verður rúmir 4200 fermetrar.

Samningurinn nær til allrar steypuvinnu við hótelið, reisingu eininga og glerjunar. Loftorka mun skila verkinu af sér rétt um fokheldi. Stefnt er á að hótelið verði opnað vorið 2015.

Bergþór Ólason hjá Loftorku segir í samtali við Skessuhorn að verkefnið sé bæði mikilvægt og spennandi. Um sé að ræða stærsta verkefnið sem Loftorka hafi samið um síðan bankarnir féllu og byggingargeirinn með.

Þarna væri því spennandi tækifæri til að sýna fram á hvað einingalausnin sé hentug þar sem aðstæður séu þröngar eins og í þessu tilviki í miðborg Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×