Þorgerður ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar Stefán Árni Pálsson skrifar 7. október 2014 10:48 Þorgerður Þráinsdóttir.
Þorgerður Þráinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar úr hópi rúmlega eitt hundrað umsækjenda. Hún mun hefja störf hjá Fríhöfninni á næstu vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Þorgerður hefur reynslu af stjórnun og smásölurekstri. Hún kemur til Fríhafnarinnar frá Lyfju hf. þar sem hún sat í framkvæmdastjórn í tíu ár, síðast sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs en þar á undan sem starfsmannastjóri. Áður hefur hún meðal annars starfað sem ráðgjafi hjá IBM Business Consulting Services í mannauðsmálum og rannsóknum. Þorgerður er með BA og Cand.Psych gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið PMD stjórnendanámi frá Opna háskólanum. „Það eru spennandi verkefni framundan hjá Fríhöfninni. Ég hlakka til að takast á við þau og kynnast starfsfólkinu sem starfar hjá fyrirtækinu. Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur líka fjölgað mikið að undanförnu sem felur í sér bæði tækifæri og áskoranir fyrir Fríhöfnina“ segir Þorgerður. Fríhöfnin er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga síðastliðin ár, m.a. í starfsmenntamálum, fyrir að vera besta fríhöfnin í Evrópu og vera fjölskylduvænt fyrirtæki. Fríhöfnin rekur fimm verslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og þar starfa um 140 manns. Tekjur Fríhafnarinnar hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og hefur Fríhöfnin á s.l. fjórum árum skilað nálægt 10 milljörðum króna til eigenda sinna.
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Sjá meira