Alhliða lausnir í upplýsingatækni 4. febrúar 2014 12:00 Baldur, Halldór og Haraldur eru hluti af Opex-teyminu, þeir kunna vel við sig fyrir framan tölvuna. VÍSIR/GVA
Opex hefur nú verið í tíu ár í upplýsingatæknibransanum. Fyrirtækið var stofnað í byrjun árs 2004 og hefur boðið upp á vefhýsingar, vefsmíði og sérhæfðar veflausnir frá þeim tíma. Síðustu fimm árin hefur fyrirtækið auk þess farið í kerfislausnir, nettengingar og símalausnir fyrir fyrirtæki.Fjölbreytt verkefni„Það fylgir því ótrúlegur fjölbreytileiki að vinna í tölvum allan daginn, eins mikil þversögn og það er,“ segir Halldór Áskell Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Opex. „Verkefni sem við vinnum fyrir viðskiptavini eru eins mismunandi og þau eru mörg. Sumir leita að einföldum lausnum fyrir samfélagsmiðla, samanber Facebook-leiki. Á meðan leita aðrir eftir utanumhaldi, hönnun, forritun, stýringu og stefnumótun fyrir vef fyrirtækisins og markaðssetningu á netinu í heild. Sem dæmi um fjölbreytileika verkefna síðasta árs þá kláruðum við stoðkerfi við söludeild fyrir tilboðsgerð, reikningagerðartól sem gefur út reikninga og bókar sjálfkrafa, greiðslu- og kortalausnir, fjölda fyrirtækjavefja, viðmót á vefauglýsingar og svona mætti lengi telja. Allt frá hugmynd að hönnun og loks forritun, útfærslu og virkni.“Aukin vitundarvakning í öryggiÞað er að mörgu að huga þegar kemur að veflausnum, hýsingum og kerfisrekstri. „Íslendingar, sem og heimurinn allur, eru að átta sig á því magni af upplýsingum sem eru aðgengilegar á netinu og mikilvægi þess að öryggi og vinnureglur séu til fyrirmyndar. Öruggir hýsingarsalir, reglubundin afritun gagna og eftirlit kerfa er nauðsynlegur partur í daglegum rekstri.“ segir Halldór. Mikið meira en bara veflausnirOpex leggur upp úr því að vera með alhliða lausnir í upplýsingatækni. „Á meðan við erum með teymi af forriturum sem vinna sérstaklega að veflausnum, þá er stór partur fyrirtækisins í kerfislausnum. Við finnum fyrir aukinni ánægju viðskiptavina með það að geta leitað á einn og sama staðinn þegar kemur að upplýsingatækni. Hvort sem það eru fyrirtækjatengingar, skýjalausnir, sérforritun eða önnur sérfræðiráðgjöf, í þessu liggur raunverulegur styrkur Opex.“ Nánari upplýsingar um Opex má finna hér.
Mest lesið Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent