Viðskipti innlent

Vöruskiptin við útlönd hagstæð um 4,4 milljarða króna

Haraldur Guðmundsson skrifar
Í desember voru fluttar út vörur fyrir tæpa 45,7 milljarða króna og inn fyrir rúma 41,2 milljarða króna.
Í desember voru fluttar út vörur fyrir tæpa 45,7 milljarða króna og inn fyrir rúma 41,2 milljarða króna. Vísir/GVA
Vöruskiptin í desember síðastliðnum voru hagstæð um 4,4 milljarða króna, reiknuð á fob verðmæti, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.

Í mánuðinum voru fluttar út vörur fyrir tæpa 45,7 milljarða króna og inn fyrir rúma 41,2 milljarða króna. Í desember 2012 voru vöruskiptin hagstæð um 3,8 milljarða króna á gengi hvors árs.

Árið 2013 voru fluttar út vörur fyrir 610,7 milljarða króna en inn fyrir 541,3 milljarða króna (fob). Vöruskiptin við útlönd skiluðu því afgangi sem nam 69,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en árið 2012 voru þau hagstæð um 77,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 7,9 milljörðum króna lakari árið 2013 en árið 2012 samkvæmt bráðabirgðatölum.

Með fob-verði (free on board) er átt við verð vöru þegar hún er komin um borð í flutningsfar í útflutningslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×