Taldi mikilvægt að halda frið við erlenda kröfuhafa Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. febrúar 2014 20:43
Fyrirtækið Hawkpoint sem var ráðgjafi síðustu ríkisstjórnar lagðist í fyrstu gegn því að þrotabú Kaupþings og Glitnis fengju eignarhluti í Arion banka og Íslandsbanka. Ráðuneytisstjóri taldi mikilvægt fyrir ríkið að halda frið við erlenda kröfuhafa bankanna.Þrotabú mega ekki eiga virka eignarhluti í fjármálafyrirtækjum. Því var farin sú leið við fjármögnun bankanna sumarið 2009 að þrotabú Kaupþings og Glitnis stofnuðu sérstök eignarhaldsfélög. Kaupskil ehf. í tilviki Kaupþings og ISB Holding í tilviki Glitnis sem halda á eignarhlutum þrotabúanna í Arion banka og Íslandsbanka. Í fundargerðum stýrinefndar ríkisstjórnarinnar sem Víglundur Þorsteinsson lögfræðingur og fyrrverandi eigandi BM Vallár aflaði hjá stjórnvöldum gegnum úrskurðarnefnd um upplýsingamál kemur fram einstök innsýn inn í ákvarðanatöku varðandi uppgjör milli gömlu og nýju bankanna vorið og sumarið 2009. Í fundargerð frá 20. mars, tveimur mánuðum eftir myndun nýrrar ríkisstjórnar eftir búsáhaldabyltinguna, kemur fram að Hawkpoint, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í málinu, telji það ekki í þágu hagsmuna ríkisstjórnarinnar að bjóða eignarhluti í nýju bönkunum til utanaðkomandi fjárfesta. Í sömu fundargerð er haft eftir Guðmundi Árnasyni ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu að ríkisstjórnin vilji „friða erlendu kröfuhafana upp að því marki sem mögulegt er.“ Eignarhald tveggja þrotabúa og þar með erlendra kröfuhafa á tveimur stærstu bönkum landsins hefur verið umdeilt alla tíð. Hvers vegna var farin sú leið að láta þessi þrotabú fá eignarhluti í Arion banka og Íslandsbanka? Hver voru rökin? Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við Gylfa Magnússon en hann var viðskiptaráðherra á þessum tíma. (Sjá myndskeið með frétt).
Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Sjá meira