Viðskipti innlent

Norðurland fær mestan byggðakvóta

Samúel Karl Ólason skrifar
Flateyri er það byggðarlag sem fær mestan byggðakvóta.
Flateyri er það byggðarlag sem fær mestan byggðakvóta. Vísir/Anton Brink
Heildarúthlutun byggðakvóta í vetur er 7.308 þorskígildistonn. Þar af fara 2.662 tonn til Norðurlands, 1.564 tonn til Vestfjarða, 1.238 tonn til Vesturlands, 1.214 tonn til Austurlands, 326 tonn til Reykjaness og 304 tonn til Suðurlands.

Úthlutunina er hægt að sjá hér.

Það sveitarfélag sem fær úthlutuðum mestum byggðakvóta er Snæfellsbær, sem fær 742 tonnum úthlutað. Ísafjarðarbær fylgir fast á eftir og fær 739 tonnum úthlutað. Það byggðarlag sem fær mestan byggðakvóta er Flateyri.

Byggðakvóta er úthlutað til byggðarlaga sem hafa færri en 2.000 íbúa sem hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski. Sem og til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×