Bandarísk yfirvöld ósammála Sigmundi Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. júlí 2014 07:00 Vörur verslunarinnar eru auglýstar á vef hennar. Skjáskot af vef
Paul Cunningham, talsmaður sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi, er ósammála fullyrðingum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins á föstudaginn. Sigmundur sagði á miðstjórnarfundinum að 99 prósent þess kjöts sem framleitt er í verksmiðjubúum í Bandaríkjunum væri sterakjöt. „Þetta ætti nú varla að vekja athygli umfram það að ég er að árétta staðreyndir sem liggja fyrir og leiða meðal annars til þess að Evrópusambandið, og við sem hluti af EES-samningum, leyfum ekki innflutning á svona kjöti vegna þessarar meðferðar,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson svo í kvöldfréttum Stöðvar 2 á sunnudag. Cunningham mótmælir þessu. „Rannsóknir hafa sýnt, oftar en einu sinni, að bandarískt kjöt og unnar vörur eru öruggar,“ segir hann og bætir því við að Bandaríkjamenn ættu að geta selt Íslendingum kjötvörur. „Við hvetjum Íslendinga til þess að halda mörkuðum opnum fyrir vörur frá Bandaríkjunum,“ segir hann. Ummæli Cunninghams eru í samræmi við fullyrðingar Charlottu Oddsdóttur, dýralæknis hjá Matvælastofnun, sem sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að það væri alls ekki bannað að flytja inn kjötvörur frá Bandaríkjunum til Evrópusambandsins. Miklar upplýsingar lægju fyrir um kjöt sem framleitt væri í Bandaríkjunum og sjúkdómaeftirlit þar í landi gott. Bandaríska matvöruverslanakeðjan Costco, sem hefur lýst áhuga á að opna verslanir hér á landi, selur úrval af kjöti sem er að sögn Costco vottað af landbúnaðarráðuneytinu þar í landi. Í lýsingu á kjötinu eru gripirnir sem ræktaðir eru og síðan slátrað við kjötframleiðsluna sagðir vera lífrænt ræktaðir. Eitt dæmið sem finna má á vef Costco er nautahryggur sem er af nauti sem er alið á grasi. Costco segir að nautið sé laust við hormóna eða önnur aukaefni. Hið sama er að segja um nautahakk sem Costco selur. Fyrirtækið selur líka nautarif frá kjötframleiðandanum Pat Lafrieda þar sem fullyrt er að öll sláturdýr séu alin án þess að notuð séu vaxtarhormón. Dýrin séu alin mannúðlega. Þau lifi á grasi og heyi mesta ævina en fái korn undir það síðasta. Þessar upplýsingar á vef Costco benda til þess að fyrirtækið eigi umtalsvert úrval af lífrænt ræktuðu kjöti til þess að flytja til Íslands, ákveði verslanakeðjan að hefja starfsemi hér á landi.
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira