Ferðamenn nú þegar orðnir fleiri en árið 2012 Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. september 2014 12:39 Vísir/GVA
Þótt enn sé þriðjungur eftir af árinu eru erlendir ferðamenn orðnir fleiri en árið 2012, fyrir aðeins tveimur árum. Þeir voru 153.400 í nýliðnum ágúst, samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem gerir tæplega 700 þúsund ferðamenn frá áramótum. Aukningin í ágúst nemur 16,4% milli ára. Vart þarf að taka fram að aldrei hafa jafn margir ferðamenn verið hér í ágúst og nú og raunar aldrei fleiri í einum mánuði frá upphafi.Graf/FerðamálastofaBandaríkjamenn og Þjóðverjar fjölmennir Bandaríkjamenn voru líkt og undanfarna mánuði fjölmennastir eða 14,7% af heildarfjölda ferðamanna í ágúst en fast á eftir fylgja Þjóðverjar með 12,6% af heild. Skáru þessar tvær þjóðir sig nokkuð úr en næst komu Frakkar (9,8%), Bretar (7,3%), Ítalir (5,1%) og Spánverjar 4,7%. Samtals voru 10 fjölmennustu þjóðernin með 69% af heildarfjölda ferðamanna. Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Frökkum, Kanamönnum, Kínverjum, Ítölum og Spánverjum mest. Þessar sex þjóðir voru með um helming af fjölgun ferðamanna í ágúst.Tvívegis álíka fjölgun í ágúst Ferðamenn voru ríflega þrisvar sinnum fleiri í ágúst í ár en þeir mældust í sama mánuði árið 2002, þegar talningar Ferðamálastofu hófust. Fjölgun hefur verið öll ár á þessu tímabili, að árinu 2010 frátöldu, og tvívegis hefur þeim fjölgað álíka á milli ára en nú, þ.e. í ágúst 2003 og 2007. Sex sinnum á þessu tímabili hefur fjölgunin verið yfir 10% á milli ára. Þegar einstök markaðssvæði eru skoðuð má sjá góða fjölgun frá öllum svæðum. Bandaríkjamönnum hefur fjölgað mest en þeir hafa hátt í þrefaldast. Bretar og þeir sem taldir eru sameiginlega undir „Annað“ hafa u.þ.b. tvöfaldast. Líkt og undanfarin ár eru ferðamenn frá Mið- og Suður Evrópu fjölmennastir í ágúst og þeim hefur fjölgað um 50% frá 2010. Norðurlandabúum hefur fjölgað sínu minnst frá frá árinu 2010, eða um 17%.Graf/Ferðamálastofa546 þúsund ferðamenn frá áramótum Það sem af er ári hafa tæplega 700 þúsund farið frá landinu um Keflavíkurflugvell, nánar tiltekið 699.810 eða um 133 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 23,5% aukningu ferðamanna milli ára frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum; N-Ameríkönum og Bretum hefur fjölgað mest, hvorum um sig um u.þ.b. 35%, Mið- og S-Evrópubúum um 15%, og ferðamönnum frá öðrum mörkuðum um 30%. Norðurlandabúum hefur hins vegar ekki fjölgað í sama mæli eða um 8,6%.Ferðir Íslendinga utan Um 37 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst síðastliðnum, nokkru færri en í júlí og nánast jafn margir og í ágúst í fyrra. Frá áramótum hafa 261 þúsund Íslendingar farið utan eða 8,7% fleiri en á sama tímabili árið 2013.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira