Gagnrýna leynd yfir framleiðslu Orkuveitunnar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 2. september 2014 07:45 Kjartan Magnússo telur eðlilegt að framleiðslan í orkuverum Orkuveitunnar sé gerð opinber. Fréttablaðið/Anton
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur segjast gera alvarlegar athugasemdir við að enn hafi ekki verið afgreiddar tillögur þeirra um auknar mælingar á loftgæðum og um að aflétt verði leynd af framleiðslutölum orkuvera fyrirtækisins. Tillögurnar voru báðar lagðar fram á stjórnarfundi OR 23. júní í sumar. Önnur er um að aflétt verði leynd af yfirliti dótturfyrirtækisins Orku náttúrunnar (ON) um orkuframleiðsluna á tímabilinu maí 2013 til maí 2014. „Teljum við að upplýsingar um framleiðslu virkjana OR eigi tvímælalaust að vera almenningi tiltækar eins og upplýsingar um rekstur annarra fyrirtækja í almannaeigu,“ segir í bókun sjálfstæðismannanna Kjartans Magnússonar og Áslaugar Friðriksdóttur á stjórnarfundi síðastliðinn föstudag. Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar OR, segir stjórn Orku náttúrunnar hafa sent Orkuveitunni framleiðslutölurnar í trúnaði. „ON er ætlað að starfa á samkeppnismarkaði og þau hljóta að hafa sjálfdæmi um það hvað þau telji að þurfi að fara leynt til þess að þau geti keppt á jafnræðisforsendum. Ég er enginn talsmaður þess að halda einhverju leyndu sem tengist almannahagsmunum en þetta er vandrataður vegur þegar starfsemin er komin í samkeppnisform,“ segir Haraldur.Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar OR.Hin tillaga sjálfstæðismanna er um að bæta vöktun á styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti í eystri hverfum borgarinnar. Settar verði upp síritandi loftgæðamælistöðvar í Breiðholti annars vegar og í Úlfarsárdal og Grafarholti hins vegar og „tryggja þannig að almenningur sé ætíð upplýstur um loftgæði á áhrifasvæði Hellisheiðarvirkjunar“, segir í tillögunni. Kjartan bendir á að sjálfstæðismenn hafi sett fram svipaða tillögu fyrir tæpu ári sem ekki hafi hlotið fullnaðarafgreiðslu. „Vandinn er kortlagður og vísindamenn sem hafa um þetta fjallað segja að það sé ekkert að græða á því að mæla meira,“ svarar Haraldur og bendir á að það myndi kosta milljónir króna að setja upp fyrrgreinda loftgæðamæla. „Það sem þarf að gera er að finna leiðir til að tryggja að magn þessara efna séu undir ákveðnum lágmörkum. Við höfum frest til að fullkanna þá aðferð að dæla þessum efnum niður í jörðina og höfum fengið mjög góðar vísbendingar um að það sé raunhæft. Samhliða á að reisa sérstaklega hannaðan háf sem, þegar á þarf að halda, blæs lofttegundunum upp fyrir veðurkerfin sem færa þessi efni inn í borgina,“ segir formaður stjórnar OR," segir formaður stjórnar Orkuveitunnar.
Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira