Stærstu fyrirtækin gera upp í erlendri mynt Jón Júlíus Karlsson skrifar 24. febrúar 2014 20:37
Langflest af stærstu fyrirtækjum landsins gera upp í erlendri mynt, þar af flest í evru. Fyrirtækin eru tæplega 300 talsins en velta þeirra er nærri fjórðungur af heildarveltu íslenskra fyrirtækja. Fyrirtækjum sem gera upp í erlendri mynt hefur fjölgað hratt á undanförnum árum. Þau voru 97 talsins árið 2005 og fjölgaði mikið á árunum þar á eftir. Þau voru 287 á árinu 2011 en voru svo 272 talsins í lok árs 2012. Þau fyrirtæki sem gera upp í erlendri mynt eru innan við eitt prósent af heildarfjölda íslenskra fyrirtækja sem voru rúmlega 30 þúsund í lok árs 2012. Í ljósi mikillar umræðu um framtíðargjaldmiðil okkar Íslendinga er fróðlegt að rýna í það hvaða fyrirtæki það eru sem gera upp í erlendri mynt. Í flestum tilfellum er um að ræða stærstu fyrirtæki landsins og nam velta þeirra á árinu 2012 24,5% af heildarveltu íslenskra fyrirtækja. Um er að ræða öflug útflutningsfyrirtæki líkt og CCP, Eimskip, Actavis og einnig helstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Flest þessara fyrirtækja gera upp í evrum eða 127 talsins. Hvers vegna kjósa stærstu fyrirtæki landsins aðra gjaldmiðla en krónuna? „Það er alveg ljóst að í þeim miklu sveiflum sem hafa verið á gengi krónunnar á undanförnum áratugum þá hefur það verið mikið farsælla fyrir fyrirtækin að gera upp í tekjumynt sinni. Það hefur færst mjög í aukana að fyrirtæki hafa verið að færa sig yfir í að gera upp í erlendri mynt,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Þorsteinn vill ekki meina að íslensk fyrirtæki séu búin að gefast upp á krónunni. „Ég myndi ekki horfa á þetta sem merki um það að fyrirtæki séu búin að gefa krónuna upp á bátinn. Það er einfaldlega skynsamlegri að uppgjörsaðferð að gera upp í sinni helstu tekjumynt.“
Mest lesið Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Sjá meira