Viðskipti innlent

Svipmynd Markaðarins: Siglir HB Granda inn á Aðalmarkaðinn

Haraldur Guðmundsson skrifar
Starfsmenn HB Granda voru að landa ufsa og karfa úr ísfisktogaranum Ottó N. Þorlákssyni þegar Fréttablaðið bar að garði.
Starfsmenn HB Granda voru að landa ufsa og karfa úr ísfisktogaranum Ottó N. Þorlákssyni þegar Fréttablaðið bar að garði. Vísir/GVA
Við erum að gera okkur vonir um að þriðjungur af hlutabréfum félagsins fari í sölu í apríl og að félagið verði í kjölfarið skráð á markað í maí,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, um undirbúninginn að skráningu félagsins á Aðalmarkað Kauphallarinnar.

Stjórnendur félagsins og stærstu eigendur tilkynntu í nóvember að þeir hefðu náð samkomulagi um skráninguna. Félagið er nú skráð á First-North-markað Kauphallarinnar en skráning á Aðalmarkað á að auka seljanleika bréfanna og stuðla að dreifðara eignarhaldi.

„Annars hafa veiðarnar gengið ágætlega í bolfiskinum en það sama verður ekki sagt um loðnuna eins og hefur ekki farið fram hjá neinum. Hún hefur verið ótrúlega brellin og óvenjulítið um þéttar torfur og veðrið hefur alls ekki hjálpað til,“ segir Vilhjálmur.

HB Grandi fékk úthlutað fimmtán þúsund tonna loðnukvóta á þessari vertíð en í fyrra veiddi félagið samtals 85 þúsund tonn. Loðnuvertíðin veldur því að öllum líkindum gríðarlegum vonbrigðum líkt og hjá öðrum fyrirtækjum sem veiða uppsjávarfiskinn.

Vilhjálmur byrjaði ungur að vinna í fiskvinnslu og fór fimmtán ára til sjós og sigldi í nítján ár.

„Síðan fór ég í land og vann í nokkur ár hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Svo var ég ráðinn til Tanga, sjávarútvegsfyrirtækis sem gerði út togara og uppsjávarskip á Vopnafirði, árið 2000, og var þar skrifstofustjóri og tók síðan við sem framkvæmdastjóri og fylgdi með inn í HB Granda í ársbyrjun 2005 þegar félögin voru sameinuð. Þá sá ég um rekstur uppsjávarveiða og vinnslu,“ segir Vilhjálmur, en hann var ráðinn forstjóri í september 2012.

Vilhjálmur lauk verslunarprófi frá Verzlunarskóla Íslands, fór þaðan í Stýrimannaskólann og útskrifaðist seinna sem útgerðartæknir frá Tækniskólanum. Hann er giftur Steinunni Ósk Guðmundsdóttur þroskaþjálfa og eiga þau fjögur börn.

„Ég stunda stang- og skotveiði og veiði rjúpu, silung og lax. Síðan held ég með Val og fylgist með enska boltanum. Þar held ég með Liverpool og maður hefði nú getað verið ánægðari með leikinn á sunnudaginn en það fór eins og það fór,“ segir Vilhjálmur og hlær.

Magnús Þór Róbertsson
Magnús Þór Róbertsson,vinnslustjóri HB Granda á Vopnafirði.

„Vilhjálmur er mjög rólegur og yfirvegaður maður. Hann hefur mjög gaman af stangveiði og það er virkilega gaman að fara með honum í veiðiferðir því Vilhjálmi finnst gaman að segja frá því þegar hann er að kljást við fiskana og lýsingarnar hjá honum eru oft skemmtilegar.

Hann er óskaplega þægilegur yfirmaður og það er gott að vinna með honum og undir hans stjórn. Hann er sanngjarn og tekur tillit til skoðana annarra og treystir sínum mönnum vel.“

Svavar Svavarsson
Svavar Svavarsson,yfirmaður viðskiptaþróunar HB Granda.

„Frá því að Vilhjálmur tók við sem forstjóri hefur hann sett mikið af nýjum hlutum í gang. Hann er fylginn sér í að gera góðar breytingar og á ekki bara auðvelt með að vinna með okkur yfirstjórnendunum heldur hefur hann einnig gert sér far um að hitta hvern einasta starfshóp í fyrirtækinu, hverja einustu áhöfn, en við erum með ellefu skip og allar þessar vinnslur á þremur stöðum á landinu. Ég fékk að taka þátt í einni syrpu með honum og það var mjög áhugavert.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×