Kaupa stóran hluta af innlendum eignum Norvik Stefán Árni Pálsson skrifar 28. febrúar 2014 17:19 Hafa eignast stóran hluta í Norvik.
SÍA II, framtakssjóður í rekstri Stefnis, hefur ásamt hópi fjárfesta gengið frá kaupum á hluta af innlendri starfsemi Norvik í gegnum Festi hf., sem verður nýtt móðurfélag hinna seldu félaga en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá framtakssjóðnum. Með kaupunum tekur Festi yfir rekstur Kaupáss, sem rekur matvöruverslanir undir merkjum Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals, Elko, Intersport, auglýsingastofunnar Expo og vöruhótelsins Bakkans. Þá hefur Festi jafnframt gengið frá kaupum á hluta af fasteignasafni Smáragarðs.Jón Björnsson ráðinn forstjóri Festi hf. er í eigu SF V slhf. og eru hluthafar um 30 talsins. SÍA II er stærsti einstaki hluthafi félagsins með um 27% hlut. Lífeyrissjóðir eru með um 32% hlut, tryggingafélög og sjóðir 15% og einkafjárfestar um 26%. Nýja stjórn Festi skipa Arnar Ragnarsson, Guðjón Karl Reynisson, Helga Hlín Hákonardóttir, Þóranna Jónsdóttir og Hreggviður Jónsson, sem er formaður stjórnar. Þá hefur Jón Björnsson verið ráðinn forstjóri Festi og mun taka samstundis til starfa. Jón var áður forstjóri ORF Líftækni en hann hefur meðal annars gegnt starfi forstjóra Magasin du Nord og Haga hf. Arctica Finance, BBA Legal og Deloitte veittu kaupendum ráðgjöf við kaupin en Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, Logos og KPMG voru ráðgjafar Norvik við söluna. „Það eru spennandi tímar framundan í rekstri Festi og dótturfélaga þess. Það er breiður hópur hluthafa sem kemur að þessum kaupum og sjáum við fjölda tækifæra í að þróa áfram þann rekstur sem hefur verið byggður upp af myndarskap og hefur á að skipa metnaðarfullu og hæfu starfsfólki. Þetta eru fyrirtæki sem starfa á markaði sem skiptir neytendur miklu máli og munum við kappkosta að bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval, hagstætt verð og góða þjónustu,“ segir Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður Festi. „Það er mat okkar fjölskyldunnar að nú sé komið að kynslóðaskiptum í þeirri starfsemi sem við höfum byggt upp og því tímabært fyrir nýja eigendur að koma að borðinu,“ segir Jón Helgi Guðmundsson. „Eins og gefur að skilja er okkur ekki sama hverjir taka við keflinu á þessum tímamótum eða hvernig á því verður haldið og það skiptir okkur miklu að nýir eigendur deila að miklu leyti okkar sýn um uppbyggingu fyrirtækisins. Í kjölfar þessara viðskipta munum við einbeita okkur að rekstri Byko og tengdra fasteigna, auk erlendrar starfsemi. Á þessum tímamótum viljum við einnig færa því starfsfólki sem hefur starfað fyrir okkur í gegnum tíðina þakkir fyrir þeirra vel unnu störf.“
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent