Kringlan stækki um 20 þúsund fermetra Hrund Þórsdóttir skrifar 7. janúar 2014 20:00
Áform um stækkun Kringlunnar hafa legið fyrir lengi. Um er að ræða byggingarreiti í Kringlunni 1 og 3 og yrði kostnaður við framkvæmdir talinn í milljarðatugum. Verði hugmyndir fasteignafélagsins Reita að veruleika verður Kringlan sjálf stækkuð um 20 þúsund fermetra en horft er til framkvæmda upp á allt að 70 þúsund fermetra af nýju húsnæði á svæðinu. „Hugmyndirnar fela í sér að verslunarrými Kringlunnar verði aukið verulega til vesturs, með viðbyggingu frá gömlu Borgar-Kringlunni, yfir götuna og yfir á svæðið þar sem gamla Morgunblaðshúsið og prentsmiðjan standa. Þau hús myndu þá víkja. Í meðfylgjandi myndskeiði sést hvernig ásýnd svæðisins yrði frá Kringlumýrarbraut en markmiðið er að skapa nútímalegt borgarumhverfi með blandaðri byggð verslunar og þjónustu, skrifstofu- og íbúðarhúsnæðis, menningar og afþreyingar. Gert er ráð fyrir um 250 nýjum íbúðum á svæðinu og hóteli í turni sem rísa myndi norðan megin við Kringluna. „Allt frá hruni hefur enginn verslunarfermetri í Kringlunni verið laus. Hér hafa öll pláss verið full, það er eftirspurn eftir því að komast inn í Kringlu en auðvitað segir sig sjálft að ef við förum í þessar framkvæmdir þarf að undirbúa það vel, meðal annars með því að tryggja ákveðna nýtingu í húsinu frá fyrsta degi,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags. Guðjón segir endanlegt samþykki borgaryfirvalda fyrir öllum fyrirhuguðum framkvæmdum ekki liggja fyrir en að viðræður séu komnar vel af stað. Hann kveðst ekki geta áætlað hvenær til framkvæmdanna komi. „En ég trúi því að innan næstu sjö til tíu ára ættum við að sjá aðeins öðruvísi landslag hér á Kringlureitnum hvað varðar framkvæmdir og byggingar.“
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent