Viðskipti innlent

Fleiri á sólarströnd en í fyrra

vísir/getty
Það er útlit fyrir að miklu fleiri Íslendingar ætli að verja hluta af sumarfríinu á suðrænum slóðum í ár en í fyrra því sólarlandaferðir seljast mun betur nú en þá. Frá þessu er greint á vefnum Túristi.is.

Forsvarsmenn ferðaskrifstofanna segja miklu meiri eftirspurn eftir sólarlandaferðum. Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, segir að um fimmtungi fleiri sæti hafi selst nú en á sama tíma í fyrra.

Margrét Helgadóttir, framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, og Guðrún Sigurgeirsdóttir, framleiðslustjóri Vita, hafa sömu sögu að segja. Salan hafi gengið mun betur núna en á síðasta ári. Krít er vinsælasti áfangastaður sóldýrkenda í ár, að því er fram kemur á Túristi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×