Sigurður Páll nýr forstjóri Deloitte Stefán Árni Pálsson skrifar 3. júní 2014 14:36 Sigurður Páll Hauksson.
Sigurður Páll Hauksson tók við sem forstjóri endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækisins Deloitte 1. júní síðastliðinn af Þorvarði Gunnarssyni en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Deloitte. Sigurður Páll á að baki meira en 20 ár í endurskoðun og ráðgjöf og hefur verið meðeigandi Deloitte frá árinu 2003. Hann hóf störf hjá fyrirtækinu árið 1994 og lauk löggildingu í endurskoðun árið 1998. Sigurður Páll var varaformaður og síðar formaður Félags löggiltra endurskoðenda árin 2009 til 2013. Hann er kvæntur Guðbjörgu Jóhannesdóttur, sóknarpresti í Langholtskirkju og eiga þau fimm börn. Deloitte á Íslandi fagnar 20 ára afmæli í ár. Hjá fyrirtækinu starfa um 190 starfsmenn á átta starfsstöðvum víðs vegar um landið. Sérfræðingar Deloitte bjóða upp á víðtæka þjónustu og ráðgjöf á sviði endurskoðunar og reikningsskila, ásamt rekstrarráðgjöf, fjármálaráðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf, ráðgjöf á sviði upplýsingatækni- og öryggismála auk sérsniðinnar þjónustu fyrir smærri fyrirtæki. „Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við öll þau spennandi verkefni sem framundan eru. Við tilheyrum stærsta endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki heims og höfum á að skipa einvala liði starfsmanna að ógleymdum traustum og öflugum viðskiptavinum. Með auknum krafti í atvinnulífinu er þörf fyrir vandaða og lausnamiðaða sérfræðiþjónustu og leggur Deloitte metnað sinn í að að veita fyrirtækjum af öllum stærðum framúrskarandi þjónustu, innanlands sem erlendis,“ segir Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Sjá meira