Þakkarviðurkenningu FKA hlaut Guðbjörg Edda Eggertsdóttir Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 30. janúar 2014 19:50
Þakkarviðurkenningu FKA 2014 hlaut Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi. Vísir ræddi við Guðbjörgu í Hörpunni í dag. Guðbjörg Edda lauk kandídatsprófi í lyfjafræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn en óraði ekki fyrir því að fyrir því þá að hún myndi enda sem forstjóri stórfyrirtækis á lyfjamarkaði. „Ég hafði upphaflega mestan áhuga á að vinna á rannsóknarstofu“ segir hún, „en fékk ekki það starf. Það var því eiginlega fyrir tilviljun sem ég fékk vinnu í lyfjaiðnaðinum og þaðan hef ég ekki átt afturkvæmt, ef svo má að orði komast. Satt best að segja hef ég heldur ekki haft neinn áhuga á að skipta um geira. Þessi iðnaður er í mikilli og hraðri þróun og það hentar mér afskaplega vel.“ Guðbjörg Edda var hún ráðin markaðsstjóri lyfjafyrirtækisins Delta 1983 og gegndi stöðu aðstoðarforstjóra hjá sama fyrirtæki 1999-2002. Eftir sameiningu Delta og Pharmaco árið 2002 var hún skipuð í framkvæmdastjórn hins sameinaða félags Actavis og átti sæti í henni þar til félagið sameinaðist Watson Pharmaceuticals 2012. Auk þess starfaði hún sem framkvæmdastjóri á markaðssviði félagsins, Medis, frá árinu 2002 til 2008 er hún tók við sem aðstoðarforstjóri Actavis samstæðunnar. Árið 2010 settist hún síðan í forstjórastól Actavis á Íslandi. Það má því segja að hún hafi unnið hjá fyrirtækinu og forverum þess í þrjátíu ár. „Já, en ég er ekki að gera neitt í dag sem ég var að gera þá“ bendir hún á. „Það er bókstaflega allt breytt. Það hafa orðið gífurlegar tækniframfarir á þessum árum, rekstur fyrirtækja er orðinn mun faglegri en hann var og svo hef ég sjálf þróast heilmikið í starfi.“ Fyrsta sumarstarf Guðbjargar Eddu var í frystihúsi – en eftir að námi lauk hefur hún ávallt gegnt stöðu stjórnanda. Sjálf segist hún ekki viss hvers vegna örlögin höguðu því þannig. „Ég hef reyndar alltaf verið þeirrar skoðunar að maður geti gert allt sem maður vill gera“ segir hún. „Þess vegna hef ég líka alltaf beitt mér fyrir því sem ég trúi að sé fyrirtækinu fyrir bestu og kannski er það ástæðan fyrir því að ég hef valist til stjórnunarstarfa.“ Hjá Actavis á Íslandi starfa nú tæplega 800 manns og þó lyfjaiðnaðurinn hafi að sögn Guðbjargar Eddu jafnan verið heldur karllægur þá bera kynjahlutföllin hja Actavis á Íslandi ekki þess merki þar sem konur eru 62% starfsmanna. Þrátt fyrir miklar annir og ábyrgðarmikið starf hefur Guðbjörg Edda komið víðar við enda segist hún svo lánsöm að vera bæði heilsuhraust og vinnusöm að eðlisfari. Árið 2012 var hún sæmd íslensku fálkaorðunni fyrir framlag sitt til uppbyggingar atvinnulífs á heilbrigðissviði. Hún tók um árabil virkan þátt í starfi Lyfjafræðingafélags Íslands og starfaði m.a. í fjögur ár sem varaformaður félagsins og önnur fjögur ár sem formaður. Hún var forseti Samtaka evrópskra samheitalyfjafyrirtækja, European Generic Medicines Association 2011-2013, hlaut Aldarviðurkenningu Verkfræðingafélags Íslands 2012 og í fyrra Stjórnunarverðlaun Stjórnvísis. Auk starfa sinna sem forstjóri Actavis á Íslandi situr Guðbjörg Edda nú í stjórnum Viðskiptaráðs Íslands, Össurar, Auðar Capital og Íslandsstofu.
Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Sjá meira