Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Rakel Sölvadóttir Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 30. janúar 2014 19:47
Hvatningarviðurkenningu FKA 2014 hlaut Rakel Sölvadóttir, tölvunarfræðingur og stofnandi Skema eða reKode eins og félagið kallast erlendis. Vísir ræddi við Rakel eftir athöfnina í Hörpu í dag. Skema sérhæfir sig í að kenna ungu fólki frá 6 ára aldri að forrita; búa til sína eigin tölvuleiki og öðlast þannig tækniþekkingu sem mun nýtast þeim á flestum sviðum í framtíðinni. „Þau eru ótrúlega móttækileg fyrir þessari fræðslu“ segir Rakel „enda er það vel þekkt staðreynd að börn eiga miklu auðveldara en fullorðnir með að læra ný tungumál og forritun er í raun bara tungumál fyrir samskipti milli manns og tölvu. Fyrir þeim er þetta ekkert flókið.“ Rakel er sannfærð um að tölvufærni og tækniþekking verði jafn veigamiklir þættir í lífi næstu kynslóðar og lestur og skrift voru í lífi þeirrar síðustu. Það skipti því höfuðmáli að tryggja að börnin okkar skilji þessa tækni og það tryggjum við best með því að byrja sem fyrst að kenna þeim. Rakel hefur hinsvegar áhyggjur af því að menntakerfið hafi sofnað á verðinum, finni til ákveðins vanmáttar gagnvart þessari þróun og nýti sér þar af leiðandi ekki alla þá stórkostlegu kosti sem tæknin býður upp á í kennslu. Fyrirtækið Skema ehf var stofnað í kjölfar þess er Rakel hlaut verðlaunin „Fræ ársins 2011“ fyrir hugmyndina „Börnin í Undralandi tölvuleikjanna“. Síðan hefur félagið haldið fjöldann allan af námskeiðum fyrir börn á aldrinum 6-16 ára þar sem forritun er fléttað saman við rannsóknir í kennslufræði og sálfræði sem leitt hafa í ljós að besta leiðin til að læra sé í gegnum leik. Nú þegar hafa ríflega 2000 börn lært að forrita á þessum námskeiðum. Fyrirtækið hefur nú fært út kvíarnar, er flutt til Redmond í Washington fylki og þar sem reKode mun opna fyrsta tæknisetrið síðar í vor. Í framhaldinu verður unnið að opnun á reKode setrum í LA, San Fransisco, Las Vegas og New York áður en opnað verður fyrir sérleyfissamninga til að opna fyrir restina af heiminum. BBC fjallaði um starf Rakelar í nýlegum þætti um Ísland sem sýndur var í Bretlandi ekki alls fyrir löngu og fyrirtæki hennar var á lista bandaríska tímaritsins Forbes yfir 10 fyrirtæki sem vert væri að fylgjast með í framtíðinni. Þar var fyrirtækinu sérstaklega hrósað fyrir að vinna að því að „búa til kynslóð frumkvöðla í stað neytenda“.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent