Ríkið þarf mögulega að bæta tjón sjóðsfélaga Höskuldur Kári Schram skrifar 19. júní 2014 14:22 Gísli Tryggvason héraðsdómslögmaður og fyrrverandi talsmaður neytenda.
Ríkið gæti verið skaðabótaskylt gagnvart þeim einstaklingum sem verða fyrir fjárhagslegu tjóni vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands að loka á sparnað almennings í útlöndum. Þetta er mat Gísla Tryggvasonar héraðsdómslögmanns en hann telur líklegt að málið endi fyrir dómstólum. Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að stöðva lífeyrissparnað almennings í útlöndum en tilkynnt var um þessar breytingar á þriðjudag. Um 30 þúsund Íslendingar hafa nýtt sér þessa leið á undanförnum árum en Seðlabankinn áætlar að árunum 2012 til 2014 hafi um 40 millljarðar króna farið úr landi vegna þessara sparnaðarleiða. Mat á fjárhagslegu tjóni einstaklinga og lögaðila vegna þessara breytinga liggur ekki fyrir en Gísli Tryggvason, héraðsdómslögmaður og fyrrverandi talsmaður neytenda, segir að ríkið gæti verið skaðabótaskylt. „Ef að þetta er ólögmæt ráðstöfun hjá Seðlabankanum eins og ég hallast að þá getur auðvitað verið að ríkið verði skaðabótaskylt vegna þessarar ákvörðunar eða breytinga á reglum. Í fyrsta lagi má efast um að Seðlabankinn hafi valdheimildir til að setja svona reglur. Hann að vísu setur þetta upp eins og hann sé að árétta gildandi reglur en gefur samt fyrirvara, fjögurra mánaða fyrirvara, og það er svolítið sérstakt að gefa fyrirvara til að fylgja reglum. Síðan efast ég um að sú ástæða sem er gefin upp, þ.e. að fylgja eftir gjaldeyrishöftum og vernda litla krónu, að hún standist. Þetta gæti verið vegna þrýstings lífeyrissjóðanna til að halda sinni stöðu,“ segir Gísli. Nokkrir einstaklingar og lögaðilar hafa þegar leitað til Gísla til að kanna sína réttarstöðu. Gísli telur líklegt að málið endi fyrir dómstólum. „Skaðabótamál er ein leiðin til þess að láta á þetta reyna. Önnur leið er ógildingarmál á þessum reglum sem Seðlabankinn er að kynna. Síðan eru EES reglur sem þetta gæti stangast á við og fleiri lagarök sem við höfum verið að kanna fyrir okkar umbjóðendur,“ segir Gísli.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira