Þrettán ár í að ríkið þarf að greiða LSR 23 milljarða árlega breytist ekkert Ingvar Haraldsson skrifar 28. maí 2014 07:15 Mikill munur er á eignum og skuldbindingum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Ríkið þarf að brúa bilið. Vísir/Arnþór Birkisson
Verði ekkert að gert mun ríkið þurfa að greiða 23 til 24 milljarða árlega á núverandi verðlagi eftir árið 2027 til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), segir Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR. Hann bætir við: „Upphæðin mun þó lækka næstu árin á eftir samfara fækkun lífeyrisþega.“ Ástæða þess er að eignir B-deildar lífeyrissjóðsins verða uppurnar árið 2027. B-deildin hefur lofað lífeyrisgreiðslum upp á 379 milljarða umfram eignir sem munu koma til greiðslu á næstu áratugum. Ríkið er ábyrgt fyrir lífeyrisgreiðslum B-deildar svo ríkið mun þurfa að greiða upphæðina. Upphæðin jafngildir helmingi af útgjöldum ríkissjóðs á einu ári. Haukur kallar eftir því að ríkið myndi sér stefnu um greiðslur til LSR. „Því fyrr sem ríkið byrjar að greiða til LSR, þeim mun betra. Hefji ríkið greiðslur strax þarf það að greiða 8 milljarða á ári. Upphæðin mun hækka eftir því sem greiðslum er frestað.“ Árið 1997 var lokað fyrir inngöngu nýrra sjóðsfélaga í B-deild LSR. Í B-deild sjóðsins hefur alltaf verið gert ráð fyrir að einungis hluti lífeyrisgreiðslna fjármagni lífeyri en ríkið ábyrgðist það sem upp á vantaði. Samfara lokun B-deildar var A-deild sjóðsins stofnuð fyrir nýja sjóðsfélaga. Í A-deildinni eiga greiðslur sjóðsfélaga að standa undir réttindum þeirra. Það hefur hins vegar ekki gengið síðustu sex ár. Árið 2013 voru skuldbindingar A-deildar umfram eignir minni en þau 10 prósenta vikmörk sem kveðið er á um í lögum. Því þarf stjórn sjóðsins að grípa til aðgerða fyrir 1. október. „Að öðru óbreyttu þarf stjórn sjóðsins að hækka iðgjöld launagreiðenda til sjóðsins til þess að standast lög,“ segir Haukur. Stjórn LSR hefur óskað eftir fundi með fjármálaráðherra til þess að fara yfir stöðu A- og B-deilda sjóðsins.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Sjá meira