HB Grandi á markað í dag Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 25. apríl 2014 11:14 „Þetta eru spennandi tímar í sögu HB Granda.“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. VÍSIR/STEFÁN
Viðskipti með hlutabréf HB Granda hf. hefjast á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland. HB Grandi tilheyrir Neysluvörugeiranum og flokkast sem miðlungsstórt félag. Viðskipti með félagið verða undir auðkenninu GRND. HB Grandi er áttunda félagið sem skráð er á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Nordic á árinu og annað félagið á NASDAQ OMX Iceland. HB Grandi sem er eitt stærsta sjávarútvegsfélag landsins framleiðir vöru úr fersku hráefni sem aflað er úr hafinu við Ísland.Félagið gerir út tíu fiskiskip og vinnur fiskafurður bæði á sjó og í landi á þremur stöðum á Íslandi. Félagið hefur mestu aflaheimildir íslenskra útgerðarfélaga og rekur eigin markaðsdeild sem selur afurðirnar um allan heim. Aðallega til Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku.Spennandi tímar í sögu félagsins Hjá HB Granda starfa um 900 manns. „Þetta eru spennandi tímar í sögu HB Granda.“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. „Skráningin hefur gert okkur kleift að ná markmiði okkar um dreifðara eignarhald og við erum afskaplega ánægð með niðurstöður hlutafjárútboðsins. HB Grandi er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og við erum stolt af því að geta boðið Íslendingum upp á tækifæri til að taka þátt í framtíðarverkefnum með okkur.“ „Skráning HB Granda á Aðalmarkaðinn markar tímamót á margan hátt.” sagði Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland. „Félagið er það fyrsta á Íslandi sem færir sig frá First North yfir á Aðalmarkaðinn, en ekki síst, þá er HB Grandi fyrsta sjávarútvegsfélagið í mörg ár sem kemur á markað.“ „Það er mjög mikilvægt að ein af undirstöðuatvinnugreinum landsins sé á markaði, þannig að bæði stærri og smærri fjárfestum séu veitt tækifæri til að fjárfesta í henni. Við bjóðum HB Granda velkomið og við hlökkum til að styðja við félagið á nýrri vegferð þess sem skráð félag,” segir Páll.
Mest lesið Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ Atvinnulíf Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Viðskipti innlent Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Viðskipti innlent BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Atvinnuleysi minnkar lítillega Viðskipti innlent Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Viðskipti innlent Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Viðskipti innlent Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Sjá meira