Kóalabjörn á grilli bíls lifði af 88 kílómetra bílferð Atli Ísleifsson skrifar 28. júlí 2014 13:51 Kólabjörninn var nokkuð skelkaður eftir bílferðina og verður komið aftur til síns heima þegar hann er búinn að jafna sig. Vísir/Getty
Kóalabjörn komst lífs af eftir að hafa þurft að þola tæplega níutíu kílómetra bílferð í norðausturhluta Ástralíu þar sem hann hélt dauðataki í grill bílsins. Dýrið hafði klifrað upp á grillið nærri bænum Maryborough þegar fjölskylda nokkur hélt för sinni áfram og ók hraðbrautina þessa löngu leið. Fjölskyldan tók fyrst eftir dýrinu þegar bílstjórinn stöðvaði bílinn á bensínstöð í Gympie, 88 kílómetrum frá síðasta stoppi. Dýralæknar voru kallaðir til og var skelkuðum kóalabirninum komið fyrir í nálægum dýragarði þar sem hann var tekinn til ítarlegrar rannsóknar. Það eina sem virtist ama að birninum var klofin nögl. Í frétt Sky News segir að björninn hafi nú fengið nafnið Timberwolf. Claude Lacasse, starfsmaður dýragarðsins, segir það ótrúlegt að kóalabjörninn hafi lifað bílferðina af. „Þetta er virkilega ótrúleg saga. Þetta er mjög heppinn kóalabjörn.“ Timberwolf jafnar sig nú í dýragarðinum í Brisbane og verður skilað aftur á þann stað þar sem hann á að hafa fest sig við bílinn þegar dýralæknar telja hann reiðubúinn til brottfarar.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira