Viðskipti innlent

Nýr liðsauki Alta á sviði samfélagsábyrgðar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Þorsteinn Kári Jónsson er nýráðinn sérfræðingur í samfélagsábyrgð og stefnumótun hjá ráðgjafarfyrirtækinu Alta.

Í mastersnámi sínu við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS) lagði Þorsteinn sérstaka áherslu á samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og sjálfbærni í fyrirtækjarekstri og tók m.a. aukagráðu í samfélagslegri frumkvöðlastarfsemi.

Þorsteinn starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð og sat á vegum hennar í tækninefnd staðlaráðs við gerð ISO 26000 sem og í stjórn faghóps Stjórnvísis um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, þar sem hann er nú formaður. Einnig hefur Þorsteinn starfað hjá rannsóknasetri CBS um samfélagsábyrgð og kennt samfélagsábyrgð við Háskólann á Bifröst.

„Þorsteinn er góður liðsauki í ráðgjafahóp Alta sem aðstoðað hefur fyrirtæki við innleiðingu samfélagsábyrgðar síðan 2001. Samfélagsábyrgð styður á einfaldan hátt við fyrirtæki sem vilja þróast í takt við tímann, leita leiða til sparnaðar, ná til nýrra viðskiptavina og hlúa að þeim gömlu. Einfaldleiki og skilningur er lykillinn að markvissri innleiðingu,“ segir í yfirlýsingu frá Alta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×