Viðskipti innlent

Sigurjón og Elín ákærð fyrir umboðsvik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hafa verið ákærð fyrir umboðsvik og verður mál þeirra þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. febrúar.
Hafa verið ákærð fyrir umboðsvik og verður mál þeirra þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. febrúar. Visir/daníel
Sigurjón Árnason og Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi stjórnendur Landsbanka Íslands, hafa verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir ólöglega lánveitingu og verður mál þeirra þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. febrúar.

Samkvæmt heimildum RÚV snýst málið um að þau Elín og Sigurjón hafi gerst sek um umboðssvik með því að heimila að Landsbanki Íslands gengist í ábyrgð fyrir aflandsfélag sem var í eigu bankans.

Upphaflega sneri rannsóknin að fleiri aflandsfélögum en Fjármálaeftirlitið kærði meint umboðssvik til sérstaks saksóknara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×