Viðskipti innlent

Verðmerkingum ábótavant hjá tíu bensínstöðvum

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Þetta voru fyrirtækin N1 Stóragerði, N1 Bíldshöfða, N1 Kringlumýrabraut, N1 Háholti, N1 Hringbraut, Olís Skúlagötu, Olís Norðlingabraut, Orkan Hraunbæ, Skeljungur Laugaveg og Skeljungur Garðabæ.
Þetta voru fyrirtækin N1 Stóragerði, N1 Bíldshöfða, N1 Kringlumýrabraut, N1 Háholti, N1 Hringbraut, Olís Skúlagötu, Olís Norðlingabraut, Orkan Hraunbæ, Skeljungur Laugaveg og Skeljungur Garðabæ. VÍSIR/GVA
Á tíu bensínstöðvum af þeim 72 stöðvum á höfuðborgarsvæðinu sem Neytendastofa kannaði með verðmerkingar hjá núna í maí var verðmerkingum ábótavant.

Þetta voru fyrirtækin N1 Stóragerði, N1 Bíldshöfða, N1 Kringlumýrabraut, N1 Háholti, N1 Hringbraut, Olís Skúlagötu, Olís Norðlingabraut, Orkan Hraunbæ, Skeljungur Laugaveg og Skeljungur Garðabæ.

Mikið var um óverðmerktar vörur en einnig fannst ósamræmi á milli hillu- og kassaverðs. Þetta er mikil afturför frá því sambærilega könnun var gerð síðast í ágúst 2010. Þá fengu fjögur fyrirtæki áminningu frá stofnuninni.

Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir verða teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög.

Allar bensínstöðvarnar voru með verðmerkingar á eldsneyti samkvæmt reglugerð. Neytendastofa hvetur neytendur til að halda áfram að senda henni merkingar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×