Gunnar: Hjónabandið hvati til árása Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 20. maí 2014 11:44 Gunnar segir Pressuna hafa greint frá ásökunum um kynferðisofbelið tli að ná ákveðnum markmiðum gagnvart Jónínu Benediktsdóttur. Vísir/GVA
Gunnar í Krossinum sagði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hjónaband hans og Jónínu Benediktsdóttur væri grunnurinn að því að nokkrar konur hafi sakað hann um kynferðisofbeldi. Mbl greinir frá þessu. Pressan.is hafi síðan greint frá þessum ásökunum „til að ná ákveðnum markmiðum gagnvart Jónínu,“ hefur Mbl eftir Gunnari. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Gunnars sem hann höfðaði gegn Vefpressunni og Steingrími Sævarr Ólafsyni, þáverandi ritstjóra Pressunnar, auk þeim Ástu Sigríði H. Knútsdóttur og Sesselju Engilráð Barðdal fer fram í dag. Gunnar krefst þess að fá fimm milljónir króna í bætur frá hverjum aðila fyrir sig vegna ásakana um kynferðisbrot. Aðalmeðferðin stendur nú yfir og greindi Vísir frá því í morgun að færri hefðu komist að en vildu í stærsta sal Héraðsdóms Reykjavíkur til að fylgjast með málinu. Gunnar sagði í dag að málið hefði verið unnið bæði innan trúfélagsins Catch the Fire og á ritstjórn Pressunnar. Hann sagði trúfélagið hafa ætlað að nota þetta mál til að fá brautargengi með það sem þau eru að gera og hafi reynt að safna saman hópi fólks til að fara með ásakanir á hendur honum og hann þannig settur í þá stöðu að geta ekki með neinum hætti varið sig. Þannig hafi sú fyrsta sem bar hann sökum verið lyft hærra innan þessa trúfélags eftir því sem ásakanir hennar urðu grófari. Fyrir rest hafi hún síðan verið komin í guðtölu innan félagsins. Síðan hafi orðið mikil viðhorfsbreyting hjá konunni eftir að Gunnar gekk í hjónaband með Jónínu. Konan hafi sagt í lögregluskýrslu að hún hafi fyllst svo mikilli reiði að hún réði ekki við hana. Gunnar sagði einnig að útgáfa Jónínu Benediktsdóttur á ævisögu sinni hafi verið hvati Pressunnar til árása, þar sem eigendur Pressunnar hafi verið settir í mjög alvarlegt ljós. Ein kvennanna í trúfélaginu hafi síðan starfað hjá Vefpressunni og miðillinn því þurft að ná fram ákveðnum markmiðum gagnvart Jónínu og notað þetta mál til þess.
Meiðyrðamál Gunnars í Krossinum Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Sjá meira