Viðskipti innlent

Reykjavíkurborg kaupir tólf metanknúna sorphirðubíla

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Svona líta bílarnir út, án merkinga Reykjavíkurborgar.
Svona líta bílarnir út, án merkinga Reykjavíkurborgar. mynd/reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg hefur gert samning um kaup á allt að tólf metanknúnum sorphirðubílum. Fyrstu fjórir bílarnir verða afhentir í október og frekari pantanir munu ráðast af endurnýjunarþörf flotans. Reykjavíkurborg greiðir 217 milljónir króna fyrir fjóra bíla en inni í verðinu er þjónustuviðhald næstu þrjú ár.

Þrír bílanna eru með tvískiptum sorpkassa þannig að hægt er að sækja tvo flokka af úrgangi samtímis. Sá fjórði er með krana sem gerir meðal annars kleift að hífa upp niðurgrafna gáma og þar sem aðkoma er þröng og erfitt að komast að með annars konar bílum.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að ráðgert sé að koma fyrir niðurgröfnum sorpgámum á nýjum byggingasvæðum svo sem í Vesturbugt og á Valssvæðinu. Stórir niðurgrafnir gámar muni auðvelda sorphirðu og gera hana skilvirkari, sérstaklega í þéttri byggð. Kraninn gerir borginni þannig mögulegt að bjóða íbúum Reykjavíkur nýjar lausnir í stað hefðbundinna tunna.

„Það er mikið hagræði af þessum bílum, bæði hvað varðar vinnulag og umhverfismál,“ segir Guðmundur Benedikt Friðriksson skrifstofustjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði, „við þurfum ekki að senda tvo bíla í hverja götu heldur getur sami bíllinn tekið blandaðan úrgang og pappír í tvískipt hólfið.“

Kröfur til sorpbíla sem boðnir voru út taka mið af þörfum Sorphirðu Reykjavíkurborgar, stefnu borgarinnar um vistvænar samgöngur og aukna flokkun úrgangs og skil til endurvinnslu. Bílarnir uppfylla Euro 6 staðalinn sem er nýjasti og strangasti umhverfisstaðalinn um mengunarefni í útblæstri bíla. Þá er gott pláss í húsum þeirra svo vel fari um sorphirðufólk borgarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×