Yfirmenn fyrirtækja segja mismunun eiga sér stað á vinnumarkaði Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2014 15:31 Vísir/Stefán
Meirihluti fyrirtækja á Íslandi með 25 starfsmenn eða fleiri er hefur ekki áætlun um hvernig bregðast eigi við kynferðislegri áreitni. Þá vinna meirihluti þeirra einnig ekki eftir jafnréttisáætlun. Mikill meirihluti yfirmanna fyrirtækja telur að mismunun ætti sér stað á íslenskum vinnumarkaði og þá mest á grundvelli kynferðis. Þetta kemur fram í skýrslunni Jafnrétti á vinnustöðum á Íslandi, sem gerð var á vegum Jafnréttisstofu. Yfirmenn fyrirtækja með 25 starfsmenn eða fleiri voru spurðir um jafnréttismál og viðhorf til mismununar á eigin vinnustað og á íslenskum vinnumarkaði almennt. Könnunin náði til 558 fyrirtækja og svarhlutfall var 50,5 prósent. Þá var einnig spurt um þekkingu á og viðhorf til tilskipana ESB um jafnrétti án tillits til kynþáttar eða þjóðernisuppruna og bann við mismunun á vinnumarkaði og í starfi. Rannsóknin var þáttur í verkefni sem Jafnréttisstofa tekur þátt í með Mannréttindaskrifstofu Íslands og Fjölmenningarsetrinu á Ísafirði. Yfir 80 prósent svarenda þekkja ekki áðurnefndar tilskapanir ESB og 62,7 prósent telja fræðslu vanta um þær. Þó hafa 59,6 prósent lítinn eða engan áhuga á að þekkja betur til þeirra. Meirihluti svarenda, eða 62,4 prósent, telja ekki þörf á nýrri jafnréttislöggjöf sem tæki til fleiri þátta en kynferðis. Þá segir í skýrslunni að nokkur munur hafi verið á afstöðu til þessara spurninga eftir kyni og stöðu svarenda. „Þær bakgrunnsbreytur sem höfðu mest áhrif á niðurstöður voru kyn og staða svarenda ásamt stærð fyrirtækis. Kyn tengdist einnig öðrum bakgrunnsbreytum þar sem konur voru hlutfallslegra yngri, höfðu meiri formlega menntun og unnu frekar sem starfsmannastjórar eða mannauðsstjórar en karlar.“
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent