Viðskipti innlent

Ætlaði að kaupa Advania í heild sinni

Snærós Sindradóttir skrifar
Sænski fjárfestirinn Thomas Ivarson leggur mikinn tíma í vinnu. Þá sjaldan að hann tekur sér frí reynir hann að komast í golf, spilar á gítar og ferðast til Palma, höfuðborgar Mallorca.
Sænski fjárfestirinn Thomas Ivarson leggur mikinn tíma í vinnu. Þá sjaldan að hann tekur sér frí reynir hann að komast í golf, spilar á gítar og ferðast til Palma, höfuðborgar Mallorca. Vísir/AndriMarinó
Fæstir Íslendingar vita hver sænski fjárfestirinn Thomas Ivarson er. Hann situr í stjórnum fyrirtækja sem hafa með allt frá raforkusparnaði að gera til netbókaútgáfu. Hann var forstjóri EHPT, dótturfyrirtækis fjarskiptarisans Ericsson og hugbúnaðarfyrirtækisins Hewlett-Packard, á árum áður. Þess utan er hann englafjárfestir í sænska uppboðshúsinu Barnebys svo fátt eitt sé nefnt.

Sér tækifærin í tækninni

Thomas er líka aðalmaðurinn á bak við stærstu erlendu fjárfestinguna á Íslandi frá hruni. Hann er andlit norræna hópsins AdvInvest sem jók hlutafé hugbúnaðarfyrirtækisins Advania um tvo milljarða króna á einu bretti. Hópurinn fer nú með 58,5 prósenta eignahlut í fyrirtækinu.

„Öll eiga verkefnin það sameiginlegt að kjarni þeirra er hugbúnaður og hugbúnaðarlausnir,“ segir Thomas.

Hann er með meistaragráðu sem rafmagnsverkfræðingur en segir að sá grunnur sé ekki það sem vakti áhuga hans á tölvum og hugbúnaðarlausnum. „Sérsvið mitt í rafmagnsverkfræði var rafleiðni og háspennulínur. Áhugi minn á fjarskiptum ræðst af því að mér þykir það áhugaverður, krefjandi og mikilvægur bransi sem snertir fjölda fólks. Fjarskiptin þróuðust svo í átt að hugbúnaðartengdum fyrirtækjum. Í raun hafði þetta ekkert með menntun mína að gera heldur frekar löngun til að vera hluti af einhverju síbreytilegu og ögrandi.“

Golfari og gítarleikari

Thomas er búsettur í Stokkhólmi ásamt eiginkonu sinni til þrjátíu ára. Hún er sjálf frumkvöðull í viðskiptum erlendis og saman eiga þau þrjú uppkomin börn. Thomas segist vera mikill fjölskyldumaður. „Þess utan legg ég bæði metnað og tíma í vinnu. Ég kann vel við það að vinna mikið,“ segir hann.

Hann kemur úr tónelskri fjölskyldu. Pabbi hans var fiðluleikari og Thomas og bræður hans þrír spila allir á hljóðfæri. „Svo þykir mér gaman í golfi. Ég tók eftir því að á Íslandi eru óvenju margir golfvellir. Á leið minni frá flugvellinum sýndist mér að þeir væru ansi krefjandi, svona umkringdir hrauni.“

Advania ekki kreppufyrirtæki

Eins og áður segir fer Thomas fyrir hópi fjárfesta sem nýlega keypti 58,5 prósenta hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Advania. Hann er nú orðinn stjórnarformaður fyrirtækisins en aðdragandi kaupanna er ekki mjög langur.

„Upphaflega heyrði ég af Advania í gegnum Aðalstein Jóhannsson hjá Beringer Finance, í október á síðasta ári. Hann hafði samband vegna bakgrunns míns í viðskiptum og upplýsingatækni. Fljótlega fór ég að heyra jákvæða hluti um fyrirtækið og áttaði mig á því að í augum viðskiptavinarins var Advania ekki enn eitt „kreppu-fyrirtækið“. Það hafði ekki þá ímynd út á við,“ segir Thomas.

Advania fór í gegnum nafnabreytingu árið 2012 þegar Skýrr, HugurAx og nokkur norræn dótturfyrirtæki sameinuðust. Thomas segist telja að sú nafnabreyting eigi sinn þátt í jákvæðri ímynd fyrirtækisins. „Mín skoðun er sú að Advania sé mjög vel valið nafn,“ segir Thomas.

Vilja ekki rjúfa tengsl við Ísland

Í kjölfar þess að hafa kynnt sér Advania betur ákvað hann að gera tilboð í fyrirtækið. „Við lögðum fram tilboð um að kaupa fyrirtækið í heild sinni. Fjárfestingarsjóður Íslands, sem þá var aðaleigandi Advania, hafnaði því tilboði með þeim rökum að þeir væru ekki tilbúnir að selja hlut sinn. Þeim þykir fyrirtækið góð fjárfesting en einnig vegna þess að tenging fyrirtækisins við Ísland væri mjög mikilvæg,“ segir Thomas. „Þeir voru hins vegar tilbúnir að styðja við aðkomu okkar í gegnum aukningu á hlutafé er myndi færa okkur 51 prósent. Í kjölfarið var farið af stað með það ferli.“

Með aðkomu Thomasar að fyrirtækinu breytist tenging þess við Ísland þó töluvert. Þrír stjórnarmenn af fimm koma erlendis frá og Íslendingar eiga ekki lengur meirihlutann í því. „Í mínum huga hefur Advania verið að þróast út í að verða norrænt hugbúnaðarfyrirtæki um nokkurra ára skeið. Þessi kaup hraða þeirri þróun vissulega en við erum ekki að gera miklar breytingar á stefnu fyrirtækisins.“

Hinir nýju erlendu stjórnarmenn eru Bengt Engström og Birgitte Stymne Göransson. Bengt var meðal annars forstjóri tölvufyrirtækisins Fujitsu og Birgitte hefur víðtæka reynslu af stjórnum hugbúnaðarfyrirtækja og fyrirtækja í heilbrigðisgeiranum.

Thomas lítur svo á að Advania hafi verið á barmi þess að verða norrænt hugbúnaðarfyrirtæki um nokkra hríð. Aðkoma hans og hinna fjárfestanna hafi ýtt á eftir þeirri þróun. Fréttablaðið/Andri Marínó
Kvaðir Seðlabankans komu á óvart

Markmið hinna nýju fjárfesta er að koma fyrirtækinu á hlutabréfamarkað hérlendis sem og í Svíþjóð innan tveggja til þriggja ára. „Það eru samt enn nokkur ljón í veginum, til dæmis gjaldeyrishöftin. Vonandi munu þau ekki koma í veg fyrir að við getum sett fyrirtækið á markað með þessum hætti,“ segir Thomas.

Fjárfestarnir ætluðu upprunalega að koma með fjármagn til landsins í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans og fá þar með afslátt á krónum. Þegar þeir lásu smáa letrið, eins og Thomas orðar það, féllu þeir þó frá þeim fyrirætlunum.

„Skilyrðin komu mér mjög á óvart,“ segir Thomas. „Ég var í raun alveg gáttaður, því það ætti að vera jákvætt fyrir íslenskt efnahagslíf að fá hingað erlenda fjárfesta. Þegar við áttuðum okkur á stöðunni hugsuðum við okkur tvisvar um hvort við ættum að halda áfram með kaupin. Á endanum fórum við hina leiðina, hún var dýrari fyrir okkur en henni fylgdi meira frelsi.“

Kvaðir Seðlabankans gerðu ráð fyrir því að fjárfestingin stæði til að minnsta kosti fimm ára auk þess sem krafa var gerð um að undirgangast bann við ráðstöfun fjárfestingarinnar á þeim tíma.

Lokaniðurstaðan þó betri

„Það að hafa ekki farið fjárfestingarleiðina er, eftir á að hyggja, styrkleikamerki fyrir bæði okkur og Advania,“ segir Thomas og bætir við að með þeim hætti geti enginn haldið því fram að fjárfestahópurinn sé að hagnýta sér gjaldeyrishöftin.

„Jafnframt bendir margt til þess að fyrirætlanir okkar um skráningu á markað í Reykjavík og Stokkhólmi séu raunhæfari kostur án skuldbindinganna sem væru á fjárfestingunni ef við hefðum komið inn í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans,“ segir Thomas.

Ekki hikandi þrátt fyrir tapið

Tap Advania á síðasta ári nam 360 milljónum króna. Tap fyrirtækisins árið 2012 nam rúmlega 1,6 milljarði króna. Thomas lítur þó ekki svo á að hann sé að taka mikla áhættu með kaupum á fyrirtækinu og lítur ekki á stöðu þess sem slæma.

„Það fjármagn sem við höfum fært inn til fyrirtækisins hefur meðal annars verið nýtt til að greiða niður lán og þar með lækka vaxtabyrði þess. Við sjáum mikla möguleika fyrir Advania á Norðurlöndunum sem og möguleika til að stækka á Íslandi. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu.“

Forskot að tengjast Norðurlöndum

„Við erum eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtækið á Norðurlöndum sem jafnframt er í meirihlutaeigu aðila frá Norðurlöndunum. Ég tel að það veiti okkur örlítið forskot. Kosturinn við Ísland er svo samkeppnishæfni þess. Hér er mikill fjöldi nýrra forritara og tölvunarfræðinga að útskrifast úr háskólunum. Þessir einstaklingar eru fullfærir um að vinna í mörgum löndum vegna góðrar tungu- málakunnáttu. Það er það sem gerir Ísland aðlaðandi,“ segir Thomas.

Sér möguleika til stækkunar

Thomas hefur háleit markmið fyrir Advania til framtíðar. Hann sér meðal annars fyrir sér að kaupa fleiri minni hugbúnaðarfyrirtæki og sameina þau undir merkjum Advania. „Það gerist samt ekki strax. Ef við finnum fyrirtæki sem er af réttri stærð og passar við áherslur og stefnu Advania þá væri það tilvalið.“

Hann vill gjarnan að Advania efli gagnaver sín eins og áætlanir gera ráð fyrir. Fyrirtækið hefur byggt og tekið í rekstur gagnaver á Fitjum í Reykjanesbæ en að auki rekur það gagnaver í Hafnarfirði.

Að lokum hefur hann hugmyndir um frekari stækkunarmöguleika fyrirtækisins á Íslandi, þrátt fyrir að Advania sé stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á landinu. „En ég vil ekki gefa neitt upp í þeim efnum. Það mun koma í ljós áður en langt um líður.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×