Auknar líkur á fleiri skrefum í afléttingu gjaldeyrishafta Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. september 2014 13:10 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. vísir/anton brink.
Munurinn á útboðsgengi í gjaldeyrisútboðum Seðlabankans og gengi íslensku krónunnar gagnvart evru á álandsmarkaði hefur helmingast frá áramótum. Krónan hefur aldrei verið sterkari í útboði en raunin var í gjaldeyrisútboðinu í gær. Greining Íslandsbanka segir að upphæð aflandskróna sé nú um það bil helmingur af því sem hún varð hæst eftir hrun, og hafa gjaldeyrisútboðin fækkað aflandskrónum um 146 milljarða króna frá því þau hófu göngu sína fyrir þremur árum síðan. Virðist sem þrýstingur vegna aflandskróna sé orðinn mun minni en hann var við upphaf útboðanna, og því hafa líkur aukist á að stjórnvöld fari að huga að næstu skrefum í afléttingu gjaldeyrishafta. Í gjaldeyrisútboði Seðlabankans í gær, sem var það fyrsta frá júní síðastliðnum, skiptu ríflega 28 milljónir evra um hendur fyrir 5,1 milljarð króna á útboðsgenginu EUR/ISK 181. Heildartilboð í fyrri legg útboðsins, þar sem fjárfestar seldu evrur til Seðlabankans í skiptum fyrir krónur, námu 32,3 m.evra. Langstærstur hluti þeirra fjárfesta sem seldu evrur í útboðinu kom inn um hina svokölluðu 50/50 leið, þar sem fjárfestum býðst að selja jafnháa fjárhæð í evrum talið í gjaldeyrisútboð og þeir selja á álandsmarkaði með gjaldeyri, að uppfylltum tilteknum skilyrðum um fjárfestingu fjárins. Alls voru 27,5 milljónir evra seldar í útboðinu vegna 50/50 leiðarinnar en 0,5 milljónir evra voru seldar vegna ríkisbréfaleiðar. Í seinni legg útboðsins, þar sem aflandskrónueigendum bauðst að kaupa evrur fyrir krónur sínar, námu heildartilboð 11,2 milljörðum króna og var 5,1 milljarðar króna tekið á ofangreindu gengi. Þróun útboðsgengisins í gjaldeyrisútboðunum hefur verið býsna fróðleg það sem af er ári. Í fyrsta útboði ársins, í febrúar síðastliðnum, var útboðsgengið gagnvart aflandskrónueigendum EUR/ISK 210. Útboðsgengið hefur síðan lækkað jafnt og þétt með hverju útboði, og krónan því styrkst gagnvart evru í útboðunum. Alls nemur þessi lækkun 29 krónur á hverja evru á tímabilinu, sem jafngildir því að krónan hafi styrkst um 16% gagnvart evru í útboðunum. Á sama tíma hefur krónan styrkst um 2% gagnvart evru á almennum markaði. Munurinn á útboðsgengi og almennu gengi krónu gagnvart evru hefur því í stórum dráttum helmingast það sem af er ári, og er nú 17,5%. Árin 2011-2013 var munurinn að jafnaði 41%, og er því ljóst að þeir fjárfestar sem selja evrur fyrir krónur í útboðunum þessa dagana njóta mun minni ábata en raunin var framan af. Greining Íslandsbanka segir að frá upphafi hafi gjaldeyrisútboðin losað 146 milljarða króna af aflandskrónum. Miðað við nýjustu tölur Seðlabankans nema aflandskrónur eftir þetta útboð um það bil 304 milljörðum króna. Hæst varð upphæð aflandskróna tæplega 600 milljarðar vorið 2009, og hefur upphæðin því nánast helmingast síðan þá, en til viðbótar við gjaldeyrisútboðin hafa sértæk viðskipti á borð við Avens-viðskiptin á sínum tíma losað um talsvert magn aflandskróna.
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira