Arion Banki með lánshæfismatið BB+ Haraldur Guðmundsson skrifar 10. janúar 2014 13:13 S&P telur Arion banka vera mikilvægan fyrir fjármálastöðugleika á Íslandi, samkvæmt tilkynningu bankans. Mynd/Pjetur
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) hefur gefið Arion Banka lánshæfismatið BB+ með stöðugum horfum. Bankinn greinir frá þessu í fréttatilkynningu. Þar segir að mat S&P sé byggt á traustri stöðu bankans á innlendum markaði. Bankinn hafi aukið markaðshlutdeild sína á íbúðalánamarkaði á undanförnum árum og starfsemi hans skiptist nú jafnt milli einstaklings- og fyrirtækjaviðskipta. Hins vegar sé bankinn lítill í alþjóðlegu samhengi. „S&P telur dreifingu tekna bankans góða en um 60% tekna eru hreinar vaxtatekjur og 25% eru vegna þóknana,“ segir í tilkynningunni. Mat S&P byggist einnig á því að eiginfjárstaða bankans er sterk og góð arðsemi af rekstri hans. Gert er ráð fyrir að eiginfjárstaðan batni enn frekar í takt við frekari sölu óskráðra eigna í félögum sem bankinn hefur þurft að taka yfir á undanförnum árum,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að áhætta í rekstri bankans sé í meðallagi og að endurskipulagningu lánasafns hans sé að mestu leyti lokið. „Fjármögnun bankans er einnig í meðallagi. Þar vegast á stöðug langtímafjármögnun bankans í samanburði við aðra banka og hættan af mögulegu útflæði innstæðna. Litlar endurgreiðslur eru af langtímalánum til ársins 2020, sem er styrkleikamerki. Lausafjárstaða bankans er sterk að mati S&P og er hann með sterka þekju lauss fjár til að standa við greiðslur af skuldum. Auk þess á bankinn laust fé og lausafjáreignir í formi verðbréfa sem nægja til að greiða út allar innstæður í erlendum myntum. S&P telur Arion banka vera mikilvægan fyrir fjármálastöðugleika á Íslandi. Þrátt fyrir það telur matsfyrirtækið að ekki sé að vænta stuðnings frá íslenska ríkinu ef kæmi til fjármálalegs óstöðugleika.“Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir í tilkynningu að lánshæfiseinkunnin sé góð einkunn þegar tekið sé mið af lánshæfismati íslenska ríkisins. Einkunnin muni bæta aðgengi bankans að erlendum fjármálamörkuðum. „Það gerir okkur vonandi kleift að bjóða viðskiptavinum, sem þess þurfa, erlenda fjármögnun á hagstæðari kjörum. Jafnframt er ljóst að bætt aðgengi Arion banka og annarra íslenskra fjármálafyrirtækja að alþjóðlegum lánsfjármörkuðum er ein af forsendum þess að hægt verði að aflétta gjaldeyrishöftum og það er einnig í því ljósi sem við teljum þetta jákvætt skref,“ segir Höskuldur.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira