Hagar hagnast um 800 milljónir króna Haraldur Guðmundsson skrifar 10. janúar 2014 13:37 Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.6 milljörðum króna. Mynd/Vilhelm.
Hagnaður Haga nam átta hundruð milljónum króna á þriðja ársfjórðungi síðasta árs og 2,7 milljörðum á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Þar segir að vörusala á fyrstu níu mánuðunum hafi numið 55.790 milljónum króna, samanborið við 52.314 milljónir árið áður. Söluaukning félagsins var því 6,6 prósent. Framlegð félagsins var 13.527 milljónir króna, samanborið við 12.585 milljónir króna árið áður eða 24,2 prósent. Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 4.236 milljónum króna, samanborið við 3.546 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 7,6%, samanborið við 6,8% árið áður. „Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 3.475 milljónum króna, samanborið við 2.612 milljónir króna árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 2.773 milljónum króna á tímabilinu eða tæplega 5,0% af veltu. Hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 2.063 milljónir. Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.632 milljónum króna. Fastafjármunir voru 12.733 milljónir króna og veltufjármunir 13.899 milljónir króna. Þar af eru birgðir 6.432 milljónir króna. Hækkun birgða frá lokum febrúar skýrist að mestu með birgðasöfnun vegna jólavertíðar. Birgðir á sama tíma í fyrra námu 5.963 milljónum króna sem nemur 7,9% hækkun milli ára. Eigið fé félagsins var 10.918 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 41,0%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 15.714 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 7.156 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 4.474 milljónir króna en 1.500 milljónir króna voru greiddar inn á langtímalán félagsins umfram lánssamning á tímabilinu, þar af 1.000 milljónir á þriðja ársfjórðungi. Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 2.437 milljónum króna, samanborið við 2.750 milljónir króna á fyrra ári,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að matvöruverslanir Haga muni á næstu dögum lækka verð á nokkur hundruð vöruliðum um að meðaltali 2-3 prósent. Um er að ræða vörur sem verslanirnar flytja beint inn frá erlendum birgjum og er þar nýtt það svigrúm sem styrking krónunnar gefur til verðlækkunar. „Hluti starfsemi vöruhúss Aðfanga mun flytja sig um set á vormánuðum þar sem á síðasta ári voru fest kaup á fasteign við Skútuvog 5 í Reykjavík. Um er að ræða kæli- og frystivörugeymslu vöruhússins en hún var áður í leiguhúsnæði við Brúarvog í Reykjavík. Auk þess mun hefjast vinna við að undirbúa byggingu nýs vöruhúss Banana en félagið hefur fest kaup á lóð við Korngarða 1 í Reykjavík. Samhliða þessu mun félagið halda áfram að skoða nýja fjárfestingakosti í kjarnastarfsemi sinni, nýjar staðsetningar, vinna í að fækka óhagkvæmum fermetrum auk þess að stefna að áframhaldandi niðurgreiðslu skulda.“
Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Sjá meira